Erling Proppé lgf. & REMAX kynnir glæsileg iðnaðar- og geymslubil með góðum sérafnotareit við Tunguhellu 6 í Hafnarfirði. Vandaður verktaki, FimmX Verk, stendur að verkefninu, sem samanstendur af tveimur húsum með fjórum bilum í hvoru.
Hvert bil er áætlað 337,5 m² þar af er 112.5 milliloft.
Sérstakt forsöluverð er á þessum eignum til 1.Janúar 2027 fyrir þá sem koma snemma inn í verkefnið. Samkvæmt verðlista hækkar fermetraverðið um 5% þann 1. janúar 2027.
Nánari upplýsingar veitir Erling Proppé, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, í síma 690 1300 eða á erling@remax.isVinnusalur á jarðhæð og sérinngangur að milliloftiHvert bil er 11,25 m breitt og 20 m djúpt. Gert er ráð fyrir 4,5 × 4,2 m innkeyrsluhurð að vinnusalnum og er aftari helmingur hans opinn upp í þak. Á jarðhæð eru jafnframt anddyri og salerni. Endabilin hafa auk þess hliðarglugga sem veita dagsbirtu inn í salinn og aukainngang á hlið hússins.
Úr anddyrinu liggur stigi beint upp á lokað milliloft. Þannig geta starfsfólk og gestir gengið beint upp í skrifstofu- eða kaffiaðstöðu án þess að fara um vinnusalinn. Af milliloftinu er útsýni yfir salinn og útgengt á svalir. Gert er ráð fyrir að milliloftið verði afhent tilbúið til innréttingar svo kaupandi geti mótað aðstöðuna að þörfum rekstrarins en einnig er boðið upp á að fá efri hæðirnar innréttaðar að óskum kaupanda.
Lóð og stækkunarmöguleikarÁ lóðinni er gert ráð fyrir afnotareitum við hvert bil. Sameiginlegar akleiðir liggja utan þeirra. Samkvæmt afstöðumynd eru um 18 m framan við fremra húsið og 20 m milli húsanna.. Bílastæði eru innan þessara svæða. Fyrirtæki sem þurfa meira rými geta sameinað samliggjandi bil, með fyrirvara um samþykki og endanlega brunahönnun.
Allar eignir verða með þinglýstri VSK-kvöð. Verkefnið er í undirbúningi. Endanleg hönnun, leyfi, skráð flatarmál og afhendingartími liggja enn ekki fyrir. Endanlegt kaupverð miðast við samþykkt flatarmál og kaupskilmála. Sjá grunnmyndir, afstöðumynd og verðlista hjá www.FimmX.isNánari upplýsingar veitir Erling Proppé, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, í síma 690 1300 eða á erling@remax.is.