DOMUSNOVA KYNNIR NÝSTANDSETTA 4RA HERBERGJA HÆÐ MEÐ AUKA ÍBÚÐ OG BÍLSKÚRSRÉTTI/BÍLASTÆÐI VIÐ EIRÍKSGÖTU 19, 101 REYKJAVÍK.
Efri hæð sem hefur verið endurnýjuð.
Sér bílastæði á baklóð.
Sigrún Einarsdóttir Hönnuður sá um alla innanhúshönnun á eigninni.
- Ný pípulögn
- Nýjir ofnar
- Nýtt skólp og drenlögn út í götu.
- Nýtt rafmagn
- Nýjar innréttingar
- Ný tæki
- Nýjar hurðar
- Ný gólfefni
- Nýtt gler að mestu
- Nýtt þakjárn
Nánari upplýsingar veita:
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með stórum fataskáp og vínilparket á gólfi.
Stofa/ borðstofa/ eldhús: Rúmgott opið rými, falleg innrétting, vönduð tæki, innbyggð uppþvottavél, stórir fallegir gluggar, og vínilparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, góðir fataskápar og vínilparket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott, innaf herberginu er lítið rými sem mætti nýta sem fataherbergi, útgengi út á svalir og vínilparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott með "walk-in" sturtuklefa, upphengt WC, fallegri innréttingu, vönduðum blöndunartækjum, 60x60 marmaraflísar og mósaik,hiti í gólfi.
Háaloft er yfir íbúðinni.
Stúdíóíbúð í kjallara skráð tómstundarými, merkt 0001:
Eldhús: Með nýrri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, harðparket og hiti í gólfi.
Stofa/herbergi: Rúmgott rými harðparket og hiti í gólfi..
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturta, upphengt WC, lítil innrétting, tengi fyrir þvottavél og hiti í gólfi.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð frá grunni að innan.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.