Hrafnkell Pálmi á Lind kynnir þetta fallega og vel skipulagða einbýlishús á einni hæð á þessum vinsæla stað við Efstalund í Garðabæ.
Húsinu fylgir stór bílskúr og skjólsæll garður með góðum veröndum til austurs og vesturs og heitum potti.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er afar vel staðsett þar sem það er innarlega í botnlagna og mjög umferðalétt svæði.
Stutt er í helstu skóla, íþróttasvæði, verslun, þjónustu og veitingastaði.Nánari upplýsingar og bókaðu skoðun:
Hrafnkell P. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Eignin skiptist í: anddyri, gestasnyrtingu, sjónvarpshol, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergisgang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og stór bílskúr. Nánari lýsing:Góð
innkeyrsla með stæði fyrir tvo bíla. Hitalögn er í plani og gengur hún alveg upp gangstíginn að aðalinngangi hússins.
Lóðin umhverfis húsið er stór og gróin með fallegum trjágróðri, grasi, timburverönd sem snýr í suður og vestur og heitum potti. Einstök veðursæld er á veröndinni bak við húsið.
Anddyrið er með fallegum ljósum flísum á gólfi og góðum fataskáp með rennihurðum.
Inn af anddyrinu er
gestasnyrting með flísum á gólfi og glugga með opnalegu fagi.
Sjónvarpsholið er bjart og rúmgott með flísum á gólfi og tengir anddyrið við eldhúsið og stofurnar.
Stofan og
borðstofan eru samliggjandi og mynda bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi og stórum gluggum á 3 vegur sem hleypa góðri birtu inní húsið. Opið inn í eldhúsið.
Eldhúsið er mjög rúmgott með eikar innréttingu með góðu skápaplássi og vinnurými. Bakarofn er í góðri vinnuhæð, keramikhelluborð með háf yfir og tengi er fyrir uppþvottavél. Góðir gluggar eru í eldhúsinu og rúmgóður eldhúskrókur. Flísar eru á gólfi.
Baðherbergið er með fallegum ljósum flísum á gólfi og stærstum hluta veggja. Upphengt salerni, walk-in sturta með glerskilrúmi, hiti er í gólfi, góðir skápar og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru fjögur í heild. Þrjú þeirra eru á svefnherbergisgangi með baðherberginu en það fjórða er inn af anddyrinu í átt að bílskúrnum.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og innfelldum fataskápum.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og léttum fataskáp.
Svefnherbergi III er með máluðu parket á gólfi og nýtt sem fataherbergi í dag.
Svefnherbergi IV er með parket á gólfi.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi og þaðan er úgengt út á lóðina hægra megin við húsið.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður með rafmagnshurðaopnara, hita, heitu og köldu neysluvatni, rafmagni og góðum gluggum.
Garðurinn er skjólsæll og gróinn með fallegum gróðri, veröndum og heitum potti. Bílaplan er hellulagt með hitaílögnum og lóðin er skráð 845 m2.
*Meðfylgjandi samþykktar teikningar endurspegla núverandi skipulag ekki að fullu þar sem búið er að færa til rými, sameina tvö minni herbergi og opna inn í geymslu sem áður var hluti af bílskúr. Helstu endurbætur og viðhald:
- 2024 - hús málað að utan og gert við steypu sprungur hjá bílskúr
- 2020 - Skipt um þakefni – járn, þakpappa, þakrennur og þakkantur endurnýjaður
- 2017 - Fráveita lagnir frá lóðarmörkum að stofni við baðherbergi, brunnur settur að greinarlögn við gestabaðherbergi.
- 2018 - stofnlagnir lóðarmörk að inntaki endurnýjað
- Baðherbergi endurnýjað af fyrri eiganda.
- Ofnalagnir og ofnar hafa verið endurnýjaðir að stærstum hluta.
- Búið að skipta um hluta af tenglum og rofum.
Efstilundur 4, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 206-9847 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Efstilundur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-9847, birt stærð 195.5 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.