Domus Fasteignasala á Blönduósi kynnir Garðabyggð 1, 540 Blönduós
Skoða kynningarmyndband um eigninaFallegt og vel skipulagt einbýlishús í einkasölu
Heildarstærð: um 450 m² (birt stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 410,1 m² + um 40 m² óskráðir fermetrar). Bílskúr: 45,3 m². Í húsinu er gólfhiti og tvöföld einangrun.
Lýsing eignarUm er að ræða rúmgott og fjölbreytt einbýlishús sem skiptist í sex útleigueiningar. Eignin stendur á rólegum stað á Blönduósi og hefur merkilega sögu þar sem það var hér áður fyrr sýslumannshúsið. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Útleigueining 1 – StúdíóíbúðAnddyri: Hótelteppi á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, sturtuklefi, baðinnrétting með neðri skápum, salerni.
Aðalrými: Hótelteppi á gólfi, fataskápur, hótelgardínur, sólskáli, útgengt á svalir.
Eldhúskrókur: Flísar á gólfi, eldhúsinnrétting, bakarofn í vinnuhæð, borðkrókur og gluggar.
Útleigueining 2 – Tveggja herbergja íbúðAnddyri: Hótelteppi á gólfi, fatahengi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, baðinnrétting með efri og neðri skápum, upphengt salerni.
Alrými: Hótelteppi á gólfi, fataskápur, hótelgardínur, útgengt á verönd.
Eldhúskrókur: Flísar á gólfi, eldhúsinnrétting, bakarofn í vinnuhæð, borðkrókur og gluggar.
Herbergi: Hótelteppi á gólfi, hótelgardínur.
Peningaskápur: um 2 m².
Útleigueining 3 – Tveggja herbergja íbúðAnddyri: Hótelteppi á gólfi.
Geymsla: Steypt gólf, gluggi.
Herbergi: Hótelteppi á gólfi, hótelgardínur, fataskápur.
Alrými: Hótelteppi á gólfi, hótelgardínur, fataskápur, sólskáli, útgengt á svalir, svefnaðstaða.
Eldhúskrókur: Flísar á gólfi, eldhúsinnrétting, borðkrókur og gluggar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, baðinnrétting með efri og neðri skápum, tveir vaskar, upphengt salerni.
Útleigueining 4 – StúdíóíbúðAnddyri: Hótelteppi á gólfi.
Alrými: Hótelteppi á gólfi, hótelgardínur, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, handklæðaofn, baðinnrétting með efri og neðri skápum, upphengt salerni.
Tvær útleigueiningar í kjallaraEldhús: Flísar á gólfi, eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, borðkrókur og gluggi.
Herbergi 1: Flísar á gólfi, fataskápur, gluggi.
Herbergi 2: Flísar á gólfi, fataskápur, gluggi.
Stofa: Flísar á gólfi, gluggi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, baðinnrétting með neðri skápum, gluggi.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi, vaskur og salerni.
Þvottaaðstaða: Flísar á gólfi, útgengt á verönd og í garð.
Kjallari Herbergi: Steypt gólf, gluggi.
Geymslur: Tvær geymslur, steypt gólf, önnur með glugga.
Bílskúr – 45,3 m²Nánari lýsing: Steypt gólf, rafdrifin bílskúrshurð, inngangshurð frá garði, gluggar.
Aðrar upplýsingarEignin býður upp á fjölbreytta möguleika, bæði til útleigu og eigin nota. Hún hefur mikla möguleika fyrir rekstur, gististarfsemi eða fjölskylduhús með tekjumöguleikum.
Eignin er einstaklega vel staðsett með frábæru útsýni yfir gamla bæinn á Blönduósi og stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.