Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 5. og næst efstu hæð í lyftuhúsi með yfirbyggðar suður svalir. Íbúðin er skráð alls 112,4fm, þar af geymsla í sameign skráð 8,9fm og stæði i bílakjallara. Vandaðar innréttingar og gólfefni, tvö stór svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, forstofa og rúmgóð stofa. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isSækja SÖLUYFIRLIT HÉRNánari lýsing: Komið er inn í forstofu af svalagangi.
Forstofan er með fataskáp og inn af forstofu er svefnherbergi. Úr forstofu er komið inn í aðalrými íbúðar. Parket á gólfum.
Eldhús er með hvíta innréttingu, rými er fyrir tvöföldum ísskáp og fyrir uppþvottavél.
Aðalrými skiptist í borðstofu og stofu með útgengi út á rúmgóða yfirbyggðar suður svalir.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt með sturtu og skápum, og góðri innréttingu.
Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi og útgangi á yfirbyggðar svalir.
Sérgeymsla íbúðar, skráð 8,9fm er á 1.hæð og
stæði í bílakjallara (möguleiki á hleðslustöð fyrir rafbíla). Sameign og lyftuhús er í góðu ásigkomulagi sem og allt húsið.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasala í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Samantekt: Frábær 3ja herbergja íbúð með góðum yfirbyggðum svölum, tveimur góðum herbergjum, rúmgóðu baðherbergi, sér þvottahbergi og opnu og björtu aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Bílstæði í bílakjallara. Lundur 92 er mjög vandað fjölbýlishús með lyftu, byggt 2011 af BYGG. Lóð og hús allt í góðu ásigkomulagi. Sutt í alla almenna þjónustu.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.