SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á GOLFVELLI*
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð einbýlishús á tveimur hæðum í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður þar sem hægt er að hafa einkasundlaug. Möguleiki á þakverönd. Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Örstutt á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7. Húsið er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. GOTT VERÐAllar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir. GSM 777 4277Nánari lýsing:Neðri hæð:
Gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými. Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út í garð.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Aðgengi út á svalir frá báðum svefnherbergjum. Aðgengi upp á þakverönd ef kaupandi vill.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Möguleiki á einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Verð frá 299.900 Evrur + kostn. (ISK 44.800.000, gengi 1E= 150 ISK)
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.
Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, þakverönd, golf, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,