Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Dalsel 36, 109 Reykjavík;
Fallega og rúmgóða íbúð á tveimur hæðum sem búið er að skipta upp í tvær íbúðir, önnur 4ra herbergja og hin 2ja herbergja, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Dalsel 36 í Seljahverfi.
Góðar leigutekjur hægt að hafa af auka íbúðinni. Eignin er laus strax.
- Eignin er skráð sem hér segir: Íbúð 105,5 fm + íbúðarhluti 45,5 fm + geymsla 7,7 fm
- Samtals 158,7 fm + stæði í lokaðri bílageymslu
- Hægt að opna aftur á milli hæða og nýta sem heildareign
- 4ra herbergja íbúð á 1. hæð auk 2ja herbergja íbúðar í kjallara og stæðis í bílageymslu.
- 2025 Skipt um alla ofna íbúðar
- 2026 Ný klæðning á þremur hliðum hússins (gaflar og bakhlið)
- 2018 Skipt um glugga og svalahurðir
- 2026 Viðgerð á þaki bílskýlis
Íbúð á efri hæð. 4ra herbergja, 105,5 fm. Eignin skiptist í : Forstofu/hol/svefnherbergisgang, eldhús, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi
Nánari lýsing: Af snyrtilegum stigagangi á 1. hæð er gengið inn í eignina.
Forstofa/hol/svefnherbergisgangur: Óvenju rúmgott, flísalagt/parketlagt með fataskápum á heilum vegg. Af því liggja aðrar vistarverur hæðarinnar.
Eldhús: Flísalagt. Með hvítri innréttingu á 2 veggjum. Eldavél og tengi f. uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur. Ný borðplata á innréttingu. Eldavél nýleg (nóv.2025), Ísskápur fylgir.
Stofa/borðstofa: Parketlögð. Opin við eldhús og forstofu. Mjög björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, parketlagt með fataskáp á heilum vegg.
Svefnherbergi 2: Parketlagt.
Svefnherbergi 3: Parketlagt.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með viðarlitri vaskinnréttingu, upphengdu salerni og "walk in" innbyggðri sturtu. Opnanlegur gluggi er á baði og tengi fyrir vélar
Íbúð á neðri hæð. 2ja herbergja, 45,5 fm. Eignin skiptist í : Forstofu/hol/gang, eldhús, stofu/svefnherbergi, baðherbergi
Nánari lýsing: Af snyrtilegu andyri stigagangs er gengið niður nokkarar tröppur og að íbúð. Það er einnig hægt að ganga inn um hurð á sameigninni, sömu hæðar.
Forstofa/hol/svefnherbergisgangur: Teppalagt með fatahengi. Af því liggja aðrar vistarverur hæðarinnar.
Eldhús: Flísalagt. Með innréttingu á 2 veggjum. Eldavél og tengi f. uppþvottavél. Borðkrókur. Opnanlegur gluggi.
Stofa/svefnherbergi : Parketlögð. Mjög björt og rúmgóð með 2 gluggum.
Baðherbergi: .Flísalagt á gólfi með vaskinnréttingu, salerni og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi er á baði og tengi fyrir vélar.
Geymsla: 7,7 fm í sameign í kjallara.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni og sameignile hjóla og vagnageymsla.
Nánari upplýsingar veitir:
Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.695-8905 / elin@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.