Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Björt og rúmgóð íbúð á 4 hæð í nýlegri lyftublokk við Austurhóla 10 á Selfossi.
Íbúðin er 80,1 fm. Húsið er byggt árið 2021. Sérinngangur í íbúð af svölum. Frábær staðstetning á Selfossi.
Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Tvö
svefnherbergi með parketi á gólfi, annað þeirra með stórum fataskáp og hitt með minni.
Þriðja herbergið er skráð
geymsla en auðvelt að nota það sem þriðja svefnherbergið enda með glugga og opnanlegu fagi.
Rúmgott
baðherbergi með flísum á gólfi, handklæðaofni, innréttingu og sturtu með glervegg. Inni á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara og hefur verið sett upp innrétting undirþau tæki.
Stofa, borðstofa og
eldhús eru í opnu og björtu rými, parket er á gólfum og útgengt er út á 7,2 fm svalir. Eyja er í eldhúsi, sem eykur nýtingu rýmisins til muna
Snyrtileg eldhúsinnrétting frá ítalska framleiðandanum Milton. Ljúflokur á öllum skúffum og skápum ásamt innbyggðri ledlýsingu sem er undir efri skápum í eldhúsi.
Húsið er
staðsteypt og klætt að utan með sléttu- og báruðu áli í bland við viðarklæðningu úr bandsagaðri furu. Gluggar eru ál/tré.
Lóðin er snyrtileg, hiti er í steyptum stéttum og sérstætt sorpskýli er á lóðinni.
Gott stigahús með lyftu og sérinngangur í íbúð af svölum.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.
Dýrahald er leyft í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.