Fasteignaleitin
Opið hús:23. nóv. kl 17:45-18:15
Skráð 19. nóv. 2026

Austurberg 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
74.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
52.500.000 kr.
Fermetraverð
703.753 kr./m2
Fasteignamat
53.150.000 kr.
Brunabótamat
38.900.000 kr.
Mynd af Lilja Ragnarsdóttir
Lilja Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1980
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2050996
Landnúmer
112108
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Lilja Ragnarsdóttir lgf. og Fasteignasalan Torg kynna í sölu vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á efstu hæð með sér inngangi af svalagangi og suður svölum í litlu fjölbýli við Vesturberg 28 í Reykjavík. Birt stærð eignarinnar er 74.6 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Geymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga og er hægt að nýta hana sem 3. svefnherbergið eða sem vinnuaðstöðu, ofan við geymsluna er geymslu loft. Íbúðin var endurnýjuð að hluta 2023, þmt. Eldhús sem var fært í alrýmið og  baðherbergi sem var flísalagt, innrétting endurnýjuð ásamt handlaug, baðkari og blöndunartækjum.Gólf í anddyri og geymslu voru dúklögð.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali, lilja@fstorg.is eða í síma 6630464
Frekari lýsing eignar:
Eignin er vel skipulögð pg skiptist í anddyri, eldhús, stofu sem rúmar borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu með opnanlegum glugga innan íbúðar.
Forstofa með fatahengi, frá forstofu er gengið inn í geymslu með opnanlegum glugga. dúkur á gólfi.
Alrými er rúmgott og bjart, það rúmar eldhús,  stofu og borðstofu. Frá alrými er gengið út á suður svalir Viðar parket er á gólfi.
Eldhús var endurnýjað 2023, falleg hvít HTH innrétting á 1 vegg, skápar ofan við og lítil skúffu eyja á hjólum.
Keramik helluborð, vifta og bakarofn. kæliskápur er innbyggður. Dúkflísar á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott það er flísalagt að hluta, innrétting er með handlaug og góður geymsluskápur er á vegg.
Baðkar er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Tengi er fyrir þvottavél og gott pláss bæði fyrir þvottavél og þurrkara er inni á baðherberginu.
Svefnherbergi 1 er mjög rúmgott með góðu skápaplássi á heilan vegg. Viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er rúmgott. Harðparket á gólfi.
Geymslan gæti nýttst sem þriðja svefnherbergið, opnanlegur gluggi. Dúkur á gólfi.Ofan við geymslu er geymslu loft. 
Í sameign hússins á jarðhæð er hjóla og vagnageymsla og sameiginlegt þurrkherbergi. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Staðsetning er mjög góð í efra Breiðholti, stutt er í Hólabrekkuskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, bókasafn, heilsugæslu, sundlaug/líkamsrækt og íþróttasvæði.
Stutt er í alla helstu verslun, þjónustu og strætó.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali, lilja@fstorg.is eða í síma 663-0464
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/04/202342.700.000 kr.43.500.000 kr.74.6 m2583.109 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:22. nóv. kl 14:00-14:30
406 steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
84,7 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
84.400.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:22. nóv. kl 14:00-14:30
501 steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
95,1 m2
Fjölbýlishús
413
945 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
Opið hús:22. nóv. kl 14:00-14:30
101 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
89 m2
Fjölbýlishús
312
920 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllagil 14 - 202
Bílskúr
Hleðslustöð
Tröllagil 14 - 202
603 Akureyri
82,5 m2
Fjölbýlishús
312
726 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin