Domusnova og Bergþóra Lárusd.lgf. kynna bjarta og vel skipulagða 110,6 fm. fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli við Kórsali 1 í Kópavogi. Þvottahús er innan íbúðar og sérgeymsla í sameign.
Eignin er skráð 4ra. herbergja (3 svefn.), á teikningu er hún 3ja. herbergja (2svefn.). Búið er að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað stofu.
***BÓKIÐ SKOÐUN***
***EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR***Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús , 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Einnig fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóður fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg upprunaleg innrétting og gott skápapláss.
Stofa og borðstofa: Stofan er björt og með útgengi á góðar svalir sem snúa í suðvestur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I (hjónah.): Rúmgóður fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Fataskápur og parket á gólfi.
Baðherbergi: Ljós innrétting, baðkar, sturta og salerni. Ljósar flísar á gólfi og veggjum,
Þvottahús: Er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, ljósar hillur og ljósar flísar á gólfi.
Geymsla: Sér geymsla (7,6 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: Eigninni fylgir sér stæði í bílageymslu.
Sameign: Rúmgóð hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
- Húsið hefur fengið gott viðhald Það var sílanborið árið 2022 og var einnig skipt um glugga og gler þar sem þurfti og þak málað.
- Lóð er rúmgóð og snyrtileg og leiksvæði fyrir börnin.
Um er að ræða góða og vel staðsetta eign þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.