Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Grjótasel 6

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
210.3 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.000.000 kr.
Fermetraverð
660.961 kr./m2
Fasteignamat
124.700.000 kr.
Brunabótamat
112.700.000 kr.
Mynd af Katla Hanna Steed
Katla Hanna Steed
Lögg. fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2054507
Landnúmer
112871
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá. upplýsingablað
Raflagnir
Sjá. upplýsingablað
Frárennslislagnir
Sjá. upplýsingablað
Gluggar / Gler
Sjá. upplýsingablað
Þak
Sjá. upplýsingablað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Framkvæmdar hafa verið múrviðgerðir á útveggjum hússins. Húsið verður málað að utan í vor og mun seljandi sjá um að ljúka þeirri framkvæmd.
Katla, löggiltur fasteignasali, og Háborg fasteignasala kynna:
Rúmgott og einstaklega fallegt hús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr við Grjótasel 6 í neðra Breiðholti. Húsið er keðjuhús og teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Um er að ræða vel skipulagða fjölskyldueign í grónu hverfi. Neðri hæð er með fjórum svefnherbergjum og baðherbergi, en efri hæð myndar bjart og rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Arinn er miðsvæðis í alrýminu og útgengi er á suðursvalir. Á efri hæð er einnig herbergi sem nýtt er sem sjónvarpsherbergi í dag og snyrting.

Eigninni fylgir sér lóð með fallegu útisvæði. Garðurinn er á tveimur svæðum sitt hvorum megin við húsið; fyrir framan húsið er sólríkur pallur/útisvæði með fallegum gróðri í beðum og hellulögð stétt tengir garðsvæði á snyrtilegan hátt. Við hlið hússins er afmarkaður garður með grindverki sem myndar notalegt útisvæði með runnum og fjölæringum sem veita gróður og næði yfir sumartímann. Þá er rúmgott bílaplan með snjóbræðslu og stæði fyrir nokkra bíla.

Eignin hefur fengið gott viðhald og upplýsingablað seljanda er aðgengilegt hjá fasteignasala.

Skráð stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands: Húsið er skráð 210,3 fm, þar af er bílskúr 46,6 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali – 822 1661 – katla@haborg.is

Nánari lýsing
Neðri hæð
Komið er inn í anddyri með fataskápum og flísum á gólfi. Þaðan er gengið í hol sem tengir öll rými hæðarinnar.
Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi:
  • Hjónaherbergi með sér fataherbergi og parketi á gólfi.
  • Barnaherbergi I með fataskáp og parketi á gólfi.
  • Barnaherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.
  • Svefnherbergi IV er staðsett við bílskúr og er rúmgott rými sem nýtist vel sem unglingaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi er rúmgott og flísalagt, með sturtu og baðkari.

Bílskúr / þvottahús / geymsla
Inngangur er úr húsinu inn í tvöfaldan bílskúr með rafmagnshurðaopnara. Þvottahús er staðsett inni í bílskúr og geymsla er einnig til staðar.

Efri hæð
Stofa, borðstofa og eldhús mynda saman samfelld alrými á efri hæð. Eldhús er með steini á borðplötum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, og gengið er í gegnum eldhúsið úr tveimur áttum sem skapar gott flæði. Útgengi er úr stofu á svalir sem snúa til suðurs. Arinn er staðsettur miðsvæðis í alrýminu og setur hlýjan svip á rýmið.
Á efri hæð er einnig herbergi sem er nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag og snyrting.

Lóð og bílastæði
Sér lóð með sólríkum palli, bílastæði fyrir nokkra bíla og snjóbræðsla í bílaplani.

Viðhald og endurbætur
Eignin hefur fengið gott viðhald. Framkvæmdar hafa verið múrviðgerðir á útveggjum hússins. Húsið verður málað að utan í vor og mun seljandi sjá um að ljúka þeirri framkvæmd. Upplýsingablað seljanda með nánari upplýsingum um viðhald og framkvæmdir er aðgengilegt hjá fasteignasala.

Staðsetning
Grjótasel er í grónu og fjölskylduvænu hverfi í neðra Breiðholti. Stutt er í skóla- og leikskólaþjónustu, verslanir og aðra nærþjónustu. Einnig er stutt í íþróttaaðstöðu og starfsemi Íþróttafélagsins ÍR.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brattakinn 23
Skoða eignina Brattakinn 23
Brattakinn 23
220 Hafnarfjörður
210.3 m2
Einbýlishús
533
584 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Hverafold 29
Opið hús:10. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverafold 29
Hverafold 29
112 Reykjavík
183.3 m2
Fjölbýlishús
513
709 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Bílskúr
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Sjafnarvellir 15
230 Reykjanesbær
182.7 m2
Parhús
624
547 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 13
Skoða eignina Hraunbrún 13
Hraunbrún 13
220 Hafnarfjörður
220.2 m2
Fjölbýlishús
626
681 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin