Fasteignaleitin
Skráð 5. feb. 2025

SPÁNAREIGNIR - Torrevieja

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
355 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
84.800.000 kr.
Fermetraverð
238.873 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
106050226
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ* *BÍLSKÚR OG STÓR GEYMSLA*
ÞÍN DRAUMAEIGN Á SPÁNI, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN Á ALLA


Falleg, björt og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð með lokuðum einkagarði og einkasundlaug í TORREVIEJA, um 30 mín akstur suður af Alicante flugvelli. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Flott hönnun. Góð verönd framan við húsið. Lokaður einkagarður með einkasundlaug. Góðar þaksvalir með glæsilegu rými. Örstutt frá Quiron Salud einkaspítalanum. Frábær staðsetning í göngufæri við verslanir og veitingastaði. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali,  GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is.


Nánari lýsing:
Stofa, borðstofa og  eldhús í rúmgóðu opnu rými. Gott útgengi út á verönd og garðinn. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Þakverönd yfir öllu húsinu. Góður sér garður með einkasundlaug, góðri grillaðstöðu og sólarverönd. Bílastæði í lokuðum kjallara ásamt stórri geymslu/tómstundarými.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca.6 mín akstur er niður á ströndina í Torrevieja og ca. 12 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega hannaðar lúxuseignir á frábæru verði og vel staðsettar í Torrevieja. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins.

Verð: 585.000 evrur + kostn. við kaupin.

Húsið er 142 fm. Verönd 29 fm. Þakverönd 116 fm. Geymsla í kjallara 36 fm. Bílskúr í kjallara 32 fm. Samtals 355 fm.
Afhending í janúar 2027.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu. Hafið samband og bókið einkaviðtal.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílskúr, þakverönd, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106050226

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkuás 25
Bílskúr
Skoða eignina Brekkuás 25
Brekkuás 25
221 Hafnarfjörður
341,3 m2
Einbýlishús
624
747 þ.kr./m2
255.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarstígur 2
Skoða eignina Tjarnarstígur 2
Tjarnarstígur 2
170 Seltjarnarnes
332,7 m2
Einbýlishús
1028
600 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Haukdælabraut 68
Bílskúr
Haukdælabraut 68
113 Reykjavík
374,5 m2
Einbýlishús
1036
879 þ.kr./m2
329.000.000 kr.
Skoða eignina Sæbólsbraut 34
Bílskúr
Skoða eignina Sæbólsbraut 34
Sæbólsbraut 34
200 Kópavogur
360,1 m2
Einbýlishús
524
664 þ.kr./m2
239.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin