Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2023
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva

Nýbygging • RaðhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
98 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
36.300.000 kr.
Fermetraverð
370.408 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
910210319
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýjar
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝ RAÐHÚS Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE* 


Falleg, rúmgóð og vel skipulögð  raðhús á einni hæð í notalegum spænskum bæ, stutt frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með lítilli einkasundlaug. Um 30 mín akstur frá Alicante, 10-20 mín akstur niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb í lokal veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradi (4km), Guardamar (15km), Rojales (6km) og Torrevieja (20km). Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.  Húsin  eru vel skipulögð með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. 

FRÁBÆRT VERÐ
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými. Góð lofthæð sem gefur góða rýmistilfinningu.
Hjónasvíta með sér baðherbergi. Eitt svefnherbergi til viðbótar, auka baðherbergi. Þvottahús og geymsla.
Út frá stofunni er góð verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Lítil einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Frá eldhúsi er gengið út á lokaða bakverönd og þaðan upp á stórar þaksvalir. 
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Stæði fyrir bíl inn á lokaðri lóð.

STÆRÐ EIGNAR: 98fm.

Örstutt göngufæri í miðbæinn, þar sem er úrval veitingastaða, verslana og þjónustu. Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Ótal góðir golfvellir á svæðinu.

Verð frá : 251.000 Evrur + kostn. (ISK 36.300.000+ kostn. miðað við gengi 1E=145 ISK) 

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK. 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK.120.000.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, air con, þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Daya Nueva,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sumareignir Nýtt Punta Prima
Sumareignir Nýtt Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
84 m2
Fjölbýlishús
423
443 þ.kr./m2
37.200.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Vistabella Sérhæðir
Sumareignir Vistabella Sérhæðir
Spánn - Costa Blanca
80 m2
Hæð
322
461 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
91 m2
Fjölbýlishús
322
391 þ.kr./m2
35.600.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Nýtt Punta Prima
Sumareignir Nýtt Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
84 m2
Fjölbýlishús
423
451 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache