Fasteignaleitin
Skráð 16. apríl 2026

Logafold 121

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
199.3 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.500.000 kr.
Fermetraverð
699.950 kr./m2
Brunabótamat
103.000.000 kr.
Byggt 1986
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20425481
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Margir inngangar

Eignin er seld og er í fjármögnunarferli. Fasteignasalan Heimaland ehf. og Guðný Guðm., lögg.fast. kynna eignina Logafold 121, 112 Reykjavík. Fallegt 199,3 fm vel viðhaldið bjart endaraðhús á tveim hæðum með fallegu útsýni í lokaðri götu í skjólsælu grónu hverfi. Örstutt í Foldaskóla og leikskóla. Fallegar aðgengilegar gönguleiðir í nágreninu.  Húsið skiptist í 5 svefnherbergi, 2 stofur, tvö baðherbergi, eldhús, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla og hiti í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.

Íbúð:
Efri hæði:  Loft eru klædd með hvítkalkaðri eik. Eldhúsið er með útsýnisgluggum bæði frá vinnuaðstöðu og borðkróki. Vel með farin, sérsmíðuð eldri viðarinnrétting með ljósum eldhúsbekkjum, hönnuð til að veita góða vinnu tilhögun. Sér eldhús borðkrókur með útsýni. Bjart rúmgott þvottaherbergi er innaf eldhúsborðkróki með sérlega góðri vinnuaðstöðu. Hjónaherbergið er með fataskápum yfir heilan vegg og snýr inn í rólegan bakgarðinn. Baðherbergið er flísalagt á veggjum og á gólfi með opnanlegu fagi í glugga, hvítum vaski í ljósri innréttingu, hvítu baðkari og salerni. Stofan er stór þar sem gengið er út á stórar, fyrri hluta dags, svalir með fallegu útsýni. Breiður stigi liggur á milli hæðanna með stórum háum glugga og útgang á sólar eftirmiðdags verönd.
Neðri hæð: Sér forstofa með faraskáp og hengi. Lítið setuhol við opin stigann á efri hæðina. Fjögur herbergi, sjónvarpshol og baðherbergi með flisum á veggjum og gólfi, opnanlegu fagi í glugga, hvítum vaski í ljósri innréttingu og sturtubotni. Fordæmi í samskonar húsi þar sem sér íbúð hefur verið gerð á neðri hæðinni. Gólfefni eru flísar, dúkur, parket og nýlegt ljóst teppi á stiga milli hæðanna. Innihurðar oghandriði á stiga eru úr bæsaðri eik.
Bílskúr: er með frjarstýrðri opnun, vatni, glugga og inngang frá bakgarði. 

Hús: Steypt hús sem hefur fengið gott viðhald: Á síðasta ári var skipt um gler og glerlista í húsinu og nýr gluggi og útgangur settur á stigapalli út í garð. 2025 voru endurnýjaðir tveir ofnar í stofu og á baðherbergi á efri hæðinni, aðrir ofnar voru yfirfarðir. 2021 var þak endurnýjað og nýr þakkanntur settur á húsið.  2024 voru múrviðgerðir á svalahandriði á sólarsvölum á efri hæðinni og hraunaðar að utanverðu.

Lóð: Er með miklum fallegum gróðri að framan, til hliðar og bakatil. Sólpallur er bakatil og útsýnis svalir framantil. Innkeyrsla og aðgönguleið eru steinhellulagðar og hitaðar með affalli heita vatnsins frá húsinu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 103
Efsta hæð
Skoða eignina Laugavegur 103
Laugavegur 103
105 Reykjavík
212.6 m2
Fjölbýlishús
4
938 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 79
Efsta hæð
Skoða eignina Kristnibraut 79
Kristnibraut 79
113 Reykjavík
102.1 m2
Fjölbýlishús
312
685 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Andrésbrunnur 8
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Andrésbrunnur 8
Andrésbrunnur 8
113 Reykjavík
95.9 m2
Fjölbýlishús
312
760 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 11
Hleðslustöð
Skoða eignina Jöfursbás 11
Jöfursbás 11
112 Reykjavík
55.4 m2
Fjölbýlishús
312
959 þ.kr./m2
53.131.564 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin