Fasteignaleitin
Skráð 3. apríl 2026

Skjólbraut 4 - 2 íbúðir

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
189.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.800.000 kr.
Fermetraverð
762.908 kr./m2
Fasteignamat
46.200.000 kr.
Brunabótamat
80.500.000 kr.
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064948
Landnúmer
115901
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Misjafnt
Frárennslislagnir
2008
Gluggar / Gler
Misjafnt
Þak
Þakjárn 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveitaa
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Vel skipulagða fimm herbergja 118,7 fm. íbúð með grónum garði ásamt aukaíbúð og bílskúr. Aukaíbúðin er 41,2 fm ásamt bílskúr sem er 14,9 fm, samtals 56,1 fm. Eignunum tveim tilheyrir anddyri og stigagangur sem er 15 fm og er heildareignin því 189,8 fm.

Aukaíbúðin er 2ja herbergja íbúð á 2 hæð ásamt bílskúr/geymslu (auðvelt er að útbúa herbergi þar eða vinnustofu).

- Möguleiki að kaupa stærri íbúðina sér
- Þakjárn 2021
- Parket á íbúð 2024
- Gler í flestum gluggum endurnýjað 2021
- Teppi á stigagang 2022
- Baðherbergi stóru íbúðar, innréttingar endurnýjaðar 2018
- Allt dren og skolplagnir endurnýjað 2008
- Þakrennur 2013


Nánari lýsing:
Vel skipulögð fimm herbergja íbúð á 118,70 m² í þríbýli. Íbúðin er með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum. Nýtt parket var lagt á íbúðina árið 2024. Eignin hefur verið vel við haldið á undanförnum árum, þar á meðal endurnýjuðu þakjárni og gleri í flestum gluggum.

Nánari lýsing stærri íbúðar:
Anddyri og gangur. 
Sameiginlegt anddyri með aukaíbúðinni. 
Stofa og borðstofa. Bjart og opið alrými með ljósu parketi á gólfi (nýtt 2024) þar sem stofa og borðstofa renna saman. Stórir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn.
Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. Nýlegt parket á gólfi, innfelld uppþvottavél.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt baðherbergi með hvítum veggflísum og ljósum gólfflísum. Hvít innrétting með vaski, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð sturta með glervegg. Gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergin eru 4 sem öll eru með nýlegu ljósu parketi (2024) og góðum gluggum.
Geymsluloft er yfir eigninni.

Nánari lýsing minni íbúðar:
Anddyri og gangur. 
Sameiginlegt anddyri með aðalíbúðinni. 
Stofa er björt og rúmgóð með gluggum á tveim hliðum. Parket á gólfi.
Eldhúsið er opið inn í stofu með góðum gluggum. 
Svefnherbergið er rúmgott með góðum skápum.
Baðherbergið er við innganginn. Góð sturta, klósett og innrétting.
Bílskúr / geymsla er á jarðhæðinni. Aðgengi er úr sameign inn í rýmið. Gluggar eru á hlið og því notkunarmöguleikar margir.

Garðurinn er skjólsæll og snýr í suður.

Eignin er staðsett við Skjólbraut í Kópavogi, á eftirsóttu og rólegu svæði með stuttri fjarlægð í alla helstu þjónustu, skóla og afþreyingu. Eignin er í nálægð við Rútstún, sundlaug Kópavogs, menningarmiðju Kópavogs, Salinn, Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn og strætóstöðvar í allar áttir. Einnig örstutt í grunnskóla og leikskóla og verslanir.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/201822.300.000 kr.29.000.000 kr.56.1 m2516.934 kr.
15/07/201111.600.000 kr.10.000.000 kr.56.1 m2178.253 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
118.7 m2
Fasteignanúmer
F2064947
Húsmat
67.990.000 kr.
Lóðarmat
9.560.000 kr.
Fasteignamat samtals
77.550.000 kr.
Brunabótamat
55.450.000 kr.
15 m2
Fasteignanúmer
2064948

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorraholt 13D
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 14:00-15:00
Skoða eignina Þorraholt 13D
Þorraholt 13D
210 Garðabær
132.1 m2
Fjölbýlishús
322
900 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 29
Bílastæði
Skoða eignina Naustabryggja 29
Naustabryggja 29
110 Reykjavík
121.8 m2
Fjölbýlishús
412
738 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (124)
Opið hús:26. apríl kl 14:00-14:30
Innigardur_30.jpg
Skoða eignina Laugaborg (124)
Laugaborg (124)
105 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0229
Opið hús:26. apríl kl 14:00-14:30
328_Kitchen1.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0229
Laugaborg 0229
105 Reykjavík
108.1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin