ALLT fasteignasala sími 560-5500 kynnir í einkasölu eignina: Urðarbraut 10, 250 Garður,
birt stærð 191.5 fm. Íbúðarhluti er
146,7m² og bílskúr
44,8 m²
Skipti á minni eign koma sterklega til greina. Björt og fín fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum, sólpallur og heitur pottur.
*** 3-4 svefnherbergi
*** 44.8 fm bílskúr
*** Heitur pottur
*** Pallur með garðhúsi
*** Björt og falleg eign
*** 1.062 fm lóð
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, rúmgóðan bílskúr með herbergi, alrými íbúðar er tvískipt með skáp í miðrými, þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi ásamt eldhúsi og stofu. Sólpallur með heitum pott ásamt geymslu skúr. Steypt bílaplan og lóð tyrfð.
Nánari lýsing eignar:Forstofa er með flísar á gólfi, skápum og millihurð.
Þvottahús er inn af forstofu, flísar á gólfi og útgengt út í lóð, þvottahús er ekki notað sem slíkt af núverandi eigendum.
Hol í opnu rými sem stúkað er af með skáp og tengir öll íverurými. Nýleg gólfefni.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum. Nýleg gólfefni.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkar og innrétting við vask. Sturtuklefi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Ofn í vinnuhæð, helluborð og vifta. Nýlegt parket á gólfum. Eldhús er opið við stofu.
Stofa er með nýlegt parket á gólfi og útgengt út á girta verönd frá borðstofu.
Bílskúr er með flísar á gólfi en stúkað hefur verið af auka herbergi/geymslu í bílskúr. Herbergið hefur útidyrahurð.
Í göngufæri er sjoppa, matvöruverslun, og grunnskóli.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali
pall@allt.is560-5501
Elín Frímannsdóttir
Aðstoðarmaður fasteignasala
elin@allt.is560-5521 / 867-4885
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.