Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Karlagötu 16, 105 Reykjavík.
Um er að ræða virkilega fallegt parhús á þremur hæðum með stórum garði á gróðursælum reit í Norðurmýrinni. Eignin er með tvöfaldri stofu, 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Garðurinn við húsið er afar skjólsæll og er einstaklega fallegur.
Nánari lýsing: Miðhæð: Komið er inn í fallega forstofu með fatahengi. Teppi á gólfi. Eldhúsið er á vinstri hönd þegar gengið er inn úr forstofu. Það hefur verið endurnýjað með fallegri og tímalausri innréttingu. Korkflísar eru á gólfi. Á hæðinni eru einnig tvennar rúmgóðar stofur; borðstofa og hefðbundin setustofa. Þær eru parketlagðar. Útgengt er í garðinn frá borðstofunni. Rishæð: Gengið er upp teppalagðan stiga. Á hæðinni eru 2 rúmgóð svefnherbergi auk baðherbergis með baðkari. Parket er á herbergjum og dúkur er á baðherbergi. Á hæðinni eru einnig tvennar geymslur undir súð. Þakgluggi er í annarri geymslunni. Kjallari: Gengið er niður teppalagðan stigann. Á hæðinni eru 2 góð parketlögð herbergi, tvennar geymslur, gestasnyrting auk sturtuaðstöðu (ekki í sama rými). Þvottahús er innst á gangi og þar er einnig lítil forstofa og hurð sem leiðir út í garð.
Garðurinn umhverfis húsið er afgirtur og mjög "prívat". Þar er mikill og fallegur gróður, m.a. rifsberjatré.
Framkvæmdir undanfarinna ára: 2024 Skipt um þakrennur á húsinu 2023 Húsið sílanhúðað að utanverðu 2021 Þak málað 2017 Skipt um glugga 2009 Skólplagnir myndaðar. Ekki þörf á aðgerðum 1995 Skipt um þakjárn 1991 Skipt um rafmagnstöflu og dregið í upp á nýtt, skipt um eldhúsinnréttingu
Þetta er einstaklega falleg og smekkleg eign sem hefur verið vel viðhaldið. Gluggar hússins eru virkilega fallegir og vandaðir.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.