Fasteignasalan TORG kynnir: rúmgóða og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3.hæð. Húsið hefur fengið gott viðhald og sameign er snyrtileg. Mjög stutt er í alla helstu þjónustu og verslun er í göngfæri frá húsinu. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is
Nánari lýsing eignar:Komið er inn í sameiginlegan stigagang með teppum á gólfi. Á jarðhæð er geymslugangur, sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með vínylparketi gólfi og rúmgóðum fataskáp. Forstofan er opin yfir í öll önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús: Beint á móti forstofunni er komið inn í eldhús sem er opið í báða enda, í annan endan að forstofunni og í hinn endan að stofunni. Eldhúsið er með innréttingu á tvo veggi með efri- og neðri skápum. Í endanum er góður borðkrókur við glugga. Vínylparketer á gólfi.
Stofa + borðstofa: Stofan er rúmgóð með vínylparket á gólfi . Rýmið nýtist vel bæði fyrir borðstofu og setustofu. Útgengi er á
svalir.Baðherbergi: Baðherbergið er með flísum á gólfi, sturtu, handlaug, ljós innrétting og handklæðaofn. Tengi fyrir Þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er mjög rúmgott með vínylparket á gólfi og stórum fataskáp.
Geymsla: sérgeymsla er í sameign sem telur 5,8 fm.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is