Hannes Steindórsson kynnir: Þrigga herbergja mjög vel skipulagða íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi, verönd og bílastæði í bílakjallara.
Parketlögð geymsla með glugga í íbúð.
Húsið er klætt að utan með áltré gluggum og því viðhaldslítið. Garður með leiktækum í miðju húsanna.
Allar innréttingar eru sprautulakkaðar hvítar með silkimattri áferð.
Fasteignamat um áramót 82.000.000krForstofa: Parketlögð með hvítum skápum uppí loft.
Eldhús: Hvít falleg innrétting með eyju og miklu skápaplássi.
Borðstofa: Parketlögð opin og björt við hlið eldhúss.
Stofa: Parketlögð og björt með fallegum gluggum, útgengt út á timburverönd til vesturs.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu og skápum. Sturtu með glerskilrúmi ásamt
innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með hvítum skápum uppí loft (12,9fm).
Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með hvítum skápum uppí loft (8,2 fm).
Geymsla/skrifstofa/herbergi: Parketlögð sérgeymsla í íbúð sem hægt er að nýta sem herbergi (5,6 fm).
Bílastæði: Sérbílastæði í bílageymslu merkt E29 fylgir með íbúðinni.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson hannes@fastlind.is s.699-5008Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð.
Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð.