RE/MAX Senter kynnir: Nýtt og glæsilegt 243,3 fm veitingarými í nýbyggingu á horni Hverfisgötu og Barónsstígs. Skilast fullbúið að utan og tilbúið til innréttinga að innan. Eitt bílastæði í bílakjallara fylgir.
Gengið er inn af Barónsstíg og niður fjögur þrep að almennu rými. Gert er ráð fyrir loftræstingu og fitusíu til vinstri í rýminu. Stofnar inn að rými fylgja með fullbúið. Mikið hefur verið lagt í hönnun hússins sem miðar að því að skapa fallegt og vandað hús á besta stað í miðborg Reykjavíkur.Veitingarými merkt 0104 (Verslun A) er á götuhæð í nýbyggingu með íbúðum á efri hæðum. Snýr það út að Barónstíg.
Húsnæðinu verður skilað uppskiptu skv. samþykktum teikningum, en frekari uppskipting rýma verður í höndum kaupenda. Hitakerfi verður fullfrágengið.
Í rýminu verður frágengin rafmangstafla og búið að draga fyrir vinnulýsingu.
Tenglar og rofar í útveggjum og steyptum innveggjum verða frágengin.
Gert er ráð fyrir einu fullfrágengnu salerni og kaffiaðstöðu í samræmi við teikningar aðalhönnuðar.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 / gudrunlilja@remax.is / gudrunlilja@remax.is, Gunnar Sverrir Harðarson lögg.fast. 862-2001 / gunnar@remax.is og Ástþór Reynir lögg. fast. í síma 899-6753 / arg@remax.isSjá skilalýsingu og nánari upplýsingar á
https://hverfis.is Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.