Virkilega fallegt 6 herbergja einbýli byggt árið 2020, á einni hæð með innangengt í bílskúrinn, glæsileg, vel skipulögð eign með aukinni lofthæð í
flestum rýmum á góðum og rólegum stað í Síðuhverfi. Bókið skoðun, sjón er sögu ríkari.
Eignin er samkvæmt Þjóðskrá Íslands 257,3 fm og þar af er bílskúrinn 39,1 fm , lóð hússins er skráð 711,7 fm.
Eignin skiptist í 4 svefnherbergi þar af eru 2 með sér baðherbergi, þriðja baðherbergið er í miðrými hússins.
Stofan og eldhúsið eru í sameignlegu rými ásamt sjónvarpsholi. Einnig er þvottahús, geymsla sem er innangegnt í bílskúrinn.
Nánari lýsing;
Forstofa er með innréttingu frá JKE.og flísum á gólfi.
Stofa er í alrými með eldhúsi útgangur úr alrými til suðurs, aukið lofthæð og ljóst parket á gólfi.
Eldhús er með vandaðri eldhúsinnrétting frá JKE, Kvarts steinn á bekkjum frá S. Helgasyni. og parket á gófli.
Sjónvarpshol er hluti af alrýminu með parket á gólfi.
Baðherbergi, sturta, og innrétting frá JKE.flísar á gólfi og veggjum
Hjónasvíta, er mjög rúmgóð öll með aukinni lofthæð , með fataskápum frá JKE og parket á gólfi. Baðherbergi innnan af svítunni er sturtu, innréttingum frá JKE og flísar á gólfi og einum vegg.
Svefnherbergi I rúmgott með fataskáp frá JKE og parket á gólfi. Baðherbergi með sturtu, fallegri innréttingu frá JKE, ljósum flísum á gólfi og veggjum,
Svefnherbergi II með fataskáp frá JKE og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp frá JKE og parket á gólfi
Bílskúr, rafmagns- innkeyrsluhurð, milliloft og útgönguhurð til austurs, flísar á gólfi
Þvottahús er með innréttingu frá JKE og innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, flísar á gólfi. Stýring loftskiptakerfis hússins er í þvottahúsi.
Aukin lofthæð er í öllum rýmum nema í geymslu, þvottahúsi og 2 baðherbergjum.
Búið er að teikna og skipuleggja garðinn.
Snjalllýsing er í húsinu en dregið var í dósir svo að auðvelt er að skipta yfir í hefðbundna rofa.
Varmaskipti og vatnslagnir til staðar fyrir veröndina/garðinn.
Snjóbræðslukerfi er í hellulögn fyrir framan húsið og gert er ráð fyrir hleðslustöð í rafmagnstöflu.
Búið er að jarðvegsskipta á lóð að mestu og er hún með salla og grófjöfnuð.
Loftskiptakerfi er í húsinu.
Þess má geta að mikil uppbygging er í næsta nágrenni, Norðurtorg er í næstu götu, opnaði fyrir rúmu ári síðan (Bónus, JYSK, Ilva, Sports Direct),
mathöll er að opna þar fljótlega og einnig er heilsugæsla í uppbyggingu stutt frá.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson lgf í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is.