Fasteignaleitin
Skráð 26. mars 2024
Deila eign
Deila

Áshlíð 11

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
285.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
412.526 kr./m2
Fasteignamat
99.650.000 kr.
Brunabótamat
121.250.000 kr.
Mynd af Björn Guðmundsson
Björn Guðmundsson
Byggt 1965
Þvottahús
Garður
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2144862
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ofnalagnir síðan 1980
Raflagnir
Síðan 1980
Frárennslislagnir
Endurnýjað út í götu ca. 1990
Gluggar / Gler
Gott - móða í einu gleri í stofu
Þak
Dúkur lagfærður 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til austurs
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Áshlíð 11


Mjög vel staðsett og virðulegt 5-6 herbergja einbýlishús á pöllum með sambyggðum bílskúr í rólegri götu í Glerárhverfi. Húsið stendur á hornlóð en norðan við það er kvennfélagsreiturinn, opið svæði. Ofarlega á lóðinni er sólskáli þaðan sem er glæsilegt útsýni. Bílastæði með snjóbræðslu er við hlið húss og fyrir framan bílskúr.

Húsið er á fjórum pöllum, komið er inn í forstofa, þaðan sem gengið er inn á hol. Tvö rúmgóð svefnherbergi og geymsla eru á hæðinni en annað herbergið hefur verið stækkað á kostnað bílskúrs. Hægt að breyta því til fyrra horfs.
Innst af holi er gengið upp hálfa hæð inn í rými þar sem er að finna tvær geymslur, snyrtingu með salerni og vask, stóran sturtuklefa og þvottahús með góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og góðu skápaplássi. Búr er inn af þvottahúsi og þá er bakdyrainngangurinn á norðurhlið hússins, inn í þvottahús. 

Aðalhæðin er aðgengileg bæði úr þvottahúsi og af holi neðri hæðar. Ef komið er upp af holi er komið upp stigann í sjónvarpshol. Rúmgóð og björt stofa er í suðurenda með stórum gluggum. Af sjónvarpsholi er svo útgengt út á svalir til austurs. 
Eldhús er með fallegri eldri innréttingu og eldhúskrók. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp er í innréttingu. 

Svefnherbergisgangur er svo á efsta palli. Þar voru áður þrjú herbergi en tvö þeirra voru sameinuð í eitt stórt. Bæði herbergi eru með rúmgóðum skápum. Baðherbergi er á milli herbergja, þar er góð innrétting í kringum vask og baðkar við enda þess. 
Mjög svo skjólsæl og sólrík steypt verönd sem snýr til suðvesturs er aðgengileg af svefnherbergisgangi. 

Sólskálinn stendur ofarlega á lóðinni, hann var byggður hinn glæsilegasti árið 1991, er 26,4 fm en þarfnast orðið viðhalds. Þaðan er mjög fallegt útsýni til austurs og út Eyjafjörðinn að Kaldbak. 

Eignin stendur miðsvæðis á Akureyri, steinsnar frá nýbyggðum ungbarnaleikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæði Þórs. Stutt í verslun og ýmsa þjónustu sem og tilvonandi heilsugæslu sem er í byggingu í Sunnuhlíð. Þá er miðbær Akureyrar í göngufæri.  

Annað: 
-Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er afar vel byggt
-Húsið málað 2021
-Þakdúkur lagaður 2022, hitaþráður á þaki
-Ljósleiðari
-Bílskúr hefur verið minnkaður á kostnað svefnherbergis
-Frárennslislagnir endurnýjaðar 1990
-Ofnalagnir og rafmagn endurnýjað 1980
-Leki varð við þakkant fyrir ofan eldhús sem hefur verið gert við að utan 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
berglind@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1991
26.4 m2
Fasteignanúmer
2144862
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.900.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tungusíða 21
Skoða eignina Tungusíða 21
Tungusíða 21
603 Akureyri
232.7 m2
Fjölbýlishús
825
462 þ.kr./m2
107.500.000 kr.
Skoða eignina Hagaskógur 1
Bílskúr
Skoða eignina Hagaskógur 1
Hagaskógur 1
604 Akureyri
249.6 m2
Einbýlishús
524
461 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Hagaskógur 1
Bílskúr
Skoða eignina Hagaskógur 1
Hagaskógur 1
604 Akureyri
249.6 m2
Einbýlishús
524
461 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Kambagerði 2
Skoða eignina Kambagerði 2
Kambagerði 2
600 Akureyri
285.4 m2
Einbýlishús
1018
417 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache