Fasteignaleitin
Skráð 15. nóv. 2026

Einilundur 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
187.2 m2
7 Herb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
987.714 kr./m2
Fasteignamat
145.050.000 kr.
Brunabótamat
94.450.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Tómasdóttir
Jóhanna Kristín Tómasdóttir
löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Jarðhæð
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
2069879
Landnúmer
118352
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan TORG kynnir:  EINSTAKT HÚS – Mikið endurnýjað og mikið breytt einbýli á einni hæð í enda botnlangagötu með ósnerta náttúru í bakgarðinum og leikvöll inn í henni miðri – ein af skemmtilegri staðsetningum í Lundunum í Garðabæ. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, aukaíbúð (áður bílskúr), opið eldhús og borðstofa, rúmgóð stofa og 2 baðherbergi og gestasnyrting. Rúmgóð lokuð verönd, gufa, heitur pottur og auka hús með skrifstofurými, allt óskráð, gefur húsinu meira nýtingargildi og karakter.   Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is


Nánari lýsing:  Húsið er byggt 1973, 190 fm ásamt 39 óskráðum fm (glerskáli/vinnuhús/gufubað) - samtals 229 fm og stendur á frábærlega staðsettri 869 fm lóð innarlega í botnlangagötu með stóru auðu svæði bak við húsið. Aðeins tveir eigendur frá upphafi.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað og breytt frá upprunalegu innra skipulagi til að stækka og sameina opið fjölskyldurými fyrir stofu, eldhús og borðstofu, auk þess sem miklu hefur verið bætt við.  Bíslag er 4 fm og var bætt við sem innanhússtengingu við bílskúrsíbúð, þvottahús og geymslu. Garðskáli byggður 2023 er framan við borðstofu og er hann 20 fm kalt rými sem er upphitað allt árið með geislahitun. Heitur pottur var endurnýjaður 2021 ásamt því að byggður var nýr stór pallur og rúmgott tæplega 6 fm gufubað. Árið 2010 var byggð 14,5 fm átthyrnd vinnustofa í garðinum úr rekaviði með hitalögn í gólfi. Vinnustofan er tengd pallinum og notuð sem skrifstofa.
Á bak við húsið er 8fm köld skemma sem nýtist sem geymsla fyrir hjól og annan búnað. Framan við húsið er tveggja fermetra krakkahús sem geymir garðáhöld í dag.
 
Forstofa: Með forstofuskáp og flísum á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott svefnherbergi innaf forstofu.
Gestasnyrting: Innaf forstofu með salerni og vaski. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu og arinn í einu horninu.
Eldhús/borðstofa: Endurnýjað 2015 með dökkum innréttingum og lítilli eyju. Innaf eldhúsi er huggulegt opið rými (áður þvottahús) sem nýtt er fyrir morgunbollann. Í hinum enda eldhússins er innangengt í bislagið og þar eru mósaíkflísar á gólfi. Búið er að opna inn í borðstofu (áður 2 svefnherbergi) þar sem nú er rúmgóð borðstofa með útgengi út í garðskálann.  
“Bislag”: Árið 1999 var bislagi bætt við húsið með sér inngangi og aðgangi úr eldhúsi. Þar er geymsla og þvottahús en einnig tenging við bílskúrinn og íbúðina sem þar er nú. Á gólfum er dúkur og flísar.
Herbergi 2 - hjón: Rúmgott með skápum yfir heilan vegg. Hurðir vantar. Parket á gólfi.
Herbergi 3: Með útgengi í garðskála.
Baðherbergi: Endurnýjað með sturtu með glervegg, upphengdu salerni og innréttingu við vask. Flísalagt gólf og hiti í gólfi. Gluggi.
Aukaíbúð(áður bílskúr): Innangengt úr húsinu í íbúðina en einnig sér inngangur. Hægt að loka alveg af og leigja út sérstaklega. Eldhúsaðstaða í opinni stofu með mósaíkflísum á gólfi. Baðherbergi með sturtu og dúk á gólfi og veggjum. Gengið upp eina tröppu og þar er svefnaðstaða með rými fyrir tvöfalt rúm, breiða kommóðu með hengi yfir og parket á gólfi.  
Gólfefni: 19 mm gegnheilt niðurlímt rauðeikarparket er á öllu húsinu nema þar sem annað er tekið fram.
Viðhald: Hér er yfirlit yfir það helsta sem gert hefur verið undanfarin ár:
Ný þriggja fasa rafmagnstafla sett upp kringum 2022 á sama tíma og tenging fyrir gufubað (9kW) og rafhleðslustöð fyrir bíl var sett upp. Á sama tíma var gufubaðið smíðað og pallurinn kringum það og fyrir framan garðskálann endursmíðaður með Lerki og rekaviðarpóstum.
Ný vatnsinntök voru tengd fyrir 10 árum í fyrirliggjandi grind.
Ofnalagnir eru í veggjum (upprunalegt) í íbúðinni en utanáliggjandi í Norðurhúsi (gamla bílskúr).Nýjar lagnir lagðar frá inntaksgrind að baðherbergi gegnum svefnherbergi þegar það var endurnýjað og niðurföll lagfærð o.fl.
Lagnaleiðir rafmagns eru upprunalegar en búið að draga nýtt í stóran hluta. Allt rafmagn í Norðurhúsi er lagt um 2005.
Þakið var endurnýjað kringum 2006-8.
 
Einstakt einbýlishús á einni hæð á frábærum stað í Garðabænum.
Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1973
50.5 m2
Fasteignanúmer
2069879
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.800.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 5 íb. 301
Lautargata 5 íb. 301
210 Garðabær
129,3 m2
Fjölbýlishús
413
955 þ.kr./m2
123.500.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 203
Lautargata 5 íb. 203
210 Garðabær
139,7 m2
Fjölbýlishús
413
923 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 201
Lautargata 5 íb. 201
210 Garðabær
89,9 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 002
Lautargata 5 íb. 002
210 Garðabær
139,3 m2
Fjölbýlishús
413
925 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin