101 Reykjavík kynnir í einkasölu: Vel staðsetta íbúð á jarðhæð á Kársnesinu í Kópavogi ásamt bílskúr. Fjölskylduvæn eign með fjórum svefnherbergjum, garði og palli. Skólar, leikskólar og öll almenn afþreying í göngufæri.
Gott aðgengi er að eign og sér bílastæði fyrir framan bílskúr. Bílskúr birt stærð 22,8 fm. Komið er inn í rúmgóða
forstofu. Á vinstri hönd frá forstofu er
þvottahús flísalagt, tenging fyrir þvottavél og þurrkara, borð og hillur þar fyrir ofan.
G
eymsla er inn af forstofu undir stiga.
Frá forstofu er komið inn í rúmgott
miðrými, þar á hægri hönd er eitt
svefnherbergi.Stofa og borðstofa eru samliggjandi með útgengi út á rúmgóðan
viðarpall og út í
garð.
Eldhús nýlega endurnýjað, falleg innrétting með efri og neðri skápum, gler á milli efri og neðri skápa, helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð, örbylgjuofn fyrir ofan ofn og innbyggð uppþvottavél við vask.
Baðherbergi nýlega endurnýjað, flísalagt gólf og veggir, opin sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, innrétting með skúffum og handlaug og spegill þar fyrir ofan með lýsingu. Til móts við innréttingu er rúmgóður baðskápur.
Svefnherbergisgangur, tvö barnaherbergi eru á gangi og hjónaherbergi í enda gangs með skáp.
Hiti er í gólfum íbúðar, nema þvottahúsi. Parketflísar eru á gólfum en flísar á baðherbergi, forstofu og í þvottahúsi.
Hús er teiknað af Kjartani Sveinssyni.Múrviðgerð á húsi 2022.Einkar vel staðsett fjölskyldueign á vinsælum stað á Kársnesinu í Kópavogi. Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 65.000,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.