Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Steinsteypt endaraðhús í grónu og skjólsælu hverfi, þar sem stutt er í alla þjónustu.
Að innan telur eignin:
Forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Forstofuherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp
Hol/miðrými með harðparketi á gólfi, upptekið loft.
Stofa með harðparketi á gólfi, upptekið loft, hurð út á sólpall sem snýr á móti suðri.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað, korkur á gólfi, hvít háglans innrétting með morgunarverðarborði
Baðherbergi er með flísum á gólfi, upphengdu WC, innréttingu með handlaug og sturtuklefa. Fibo plötur eru á veggjum
Aðalsvefnherbergi er með harðparketi á gólfi og stórum innbyggðum fatakápum.
Svefnherbergi no. 3 er með harðparketi á gólfum og fataskáp.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er hurð þaðan og út í innkeyrslu.
Búr/geymsla er við hlið eldhúss og þvottahúss, þar er harðparket á gólfi og er það nýtt sem herbergi í dag.
Bílskúr er með rafdrifnum hurðaopnara og gönguhurð út í garð bakatil.
Innkeyrsla er malbikuð og hellulagður göngustígur er að aðalhurð.
Garður er gróin, skjólgóður og fallegur.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.