Fasteignasalan TORG kynnir: Vel við haldið og mikið endurbætt 4-5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í Garðabæ. Alls skráð 206fm, þar af er bílskúr 67fm. Húsið skiptist í forstofu, hol, þvottaherbergi, aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. 3 svefnherbergi, og rúmgott baðherbergi. Góð staðsetning, stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Allar nánari Upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða netfang sigurdur@fstorg.isSækja söluyfirlit HÉRHelstu punktar: Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum árin. Fyrir allnokkrum árum var húsið lagfært að utan, múrað og málað. Skipt um þak. Endurnýjað aðalrými, eldhús, borðstofa og stofa. Baðherbergi var allt endurnýjað. Bakgarður er í góðri rækt, fram-garður var allur endurnýjaður og að sögn seljanda voru lagnir endurnýjaðar*
Nánari lýsing: Komið er inn í
forstofu með góðum fataskáp. Opið er inn í hol þaðan sem gengið er inn í öll rými hússins. Parket á nær öllu húsinu fyrir utan votrými.
Hol / sjónvarpshol: gengið útúr því út í bakgarð, timburpall. Úr holi er gengið upp nokkrar tröppur inn í aðalrými hússins eða inn á svefnherbergisgagn.
Aðalrými: Eldhús með góðri innréttingu, eyju og vönduðum tækjum. Inn af eldhúsi er þvottaherbergi með ágætri aðstöðu. Í aðalrými sem er allt opið, með góðum gluggum, niðurfeldu lofti og lýsingu, er borðstofa og stofa.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi með fataskáp og góðum glugga með opnanlegu fagi, parket á gólfi. Í dag eru tvo rúmgóð barnaherbergi, annað þeirra var áður tvo minni barnaherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergið hefur allt verið endurnýja, flísalagt að mestu, upphengdu salerni og góðri sturtu, og ágætum skáp.
Heimkeyrsla og Bílskúr: Bílskúr er skráður 67 fm og er undur aðalrými hússins, geymsla er bakatil, og útgengi út í bakgarð. Heymkeyrsla fyrir 3-4 bíla. hellulagt með bræðslukerfi.
Samantekt: Um er að ræða mjög gott fjölskylduhús, 4-5 herbergja. Húsið hefur fengið gott viðhald að utan og innan í gegnum árin. Stutt er í alla almenna þjónustu, leikskóla sem skóla. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda, sjá verðskrá fasteignasölunnar
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.