ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Huldudalur 17, 260 Reykjanesbær, birt stærð 172.5 fm. Bókið skoðun sýnum samdægurs!Um er að ræða 5 herbergja ( fjögur svefnherbergi ) parhús í Dalshverfi III í Innri-Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpshol þar sem 3 svefnherbergi eru innaf holi, eldhús er opið við stofu og borðstofu. Innangenginn bílskúr.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Um er að ræða steinsteypt parhús á einni hæð sem skilast fokhelt.Frágangur eignar útfrá skilalýsingu.UtanhússHúsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt standandi báru-álklæðningu (18/76). Þak er frágengið með tvöföldu lagi þakpappa, XPS einangrun og möl. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré, svartir að utan (Ral 9005) en hvítir að innan, með tvöföldu k-gleri – ábyrgð framleiðanda á gleri fylgir kaupanda við afhendingu. Útiljós á klæðningu fylgja. Lóð skilast með hellulögðu bílaplani og grasi þar sem við á.
InnandyraHúsið skilast með slípuðum steyptum veggjum og rörasladdaðri botnplötu. Kaupandi gæti þurft að rétta af og múra steypta fleti fyrir sandspörslun. Búið er að koma fyrir boxum fyrir loftljós, börkum fyrir útsog í votrýmum og blikkgrindum fyrir létta veggi, auk þess sem lagt hefur verið fyrir vatns- og neysluvatnslögnum (ótengt). Gluggar koma málaðir en gætu þurft hreinsun/lokamálun.
AfhendingAfhending fer fram samkvæmt samkomulagi í kauptilboði. Kaupandi getur hafið innivinnu strax við afhendingu, jafnvel þó úti- og klæðningarvinnu sé ekki að fullu lokið. Við afhendingu fer fram stöðuúttekt og byggingarstjóri segir sig frá verkinu – kaupandi þarf því að ráða nýjan byggingarstjóra og meistara.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það hefur verið lagt á eftir lokaúttekt og beiðni um brunabótamat. Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.