Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna glæsilegt iðnaðarbil við Hamraenda 4 í Stykkishólmi, nánar tiltekið eign merkt 01-05, fastanúmer 252-8947 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða vandað og fullbúið bil í nýlegu stálgrindarhúsi sem er klárt og tilbúið til afhendingar. Skráð stærð eignarinnar er 128,9 m², þar af 92,8 m² iðnaðarrými og 36,1 m² milliloft. Lofthæðin er um 5,2–7 m og innkeyrsluhurðin er um 4 x 4 m. Góð lofthæð og stór hurð gera rýmið hentugt fyrir fjölbreytta starfsemi og geymslu, meðal annars fyrir stærri báta. Gólf eru með epoxy-efni og gólfhita. Útveggir eru klæddir 80 mm yleiningum, en milliveggir og bakveggur eru úr 120 mm yleiningum. Staðsteyptar undirstöður og botnplata eru í húsinu og lagnir hafa verið lagðar fyrir salernisaðstöðu sem býður upp á ýmsa möguleika. Planið og lóðarsvæðið hafa nýlega verið malbikuð, sem bætir aðgengi að húsinu og gefur eigninni snyrtilegt og vandað yfirbragð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.