Halldór Már, löggiltur fasteignasali og Íbúðaeignir fasteignasala kynna til sölu: Einstaklega vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð með auka herbergi í kjallara (5 herbergið) íbúðin er björt með góðu útsýni og svölum sem snúa í suð-vestur.
Um er að ræða eign á eftirsóttum stað í vesturbænum rétt við KR völlinn og stutt er í grunnskóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Íbúðin er tóm og getur því verið afhent við kaupsamning.Íbúðin skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stóra stofu. Í kjallara fylgir sér herbergi með glugga, ásamt sér geymslu auk sameiginlegs þvottahúss, hjólageymslu o.fl. Sameiginleg snyrting er í sameign.
Nánari lýsing:Forstofa/hol rúmgott, parketlagt með aðgengi í allar vistarverur íbúðar.
Eldhús með upprunalegri retro-innréttingu og parket á gólfi.
Stofan er rúmgóð með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi I er rúmgott og bjart með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II er rúmgott og bjart, parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, salerni og innréttingu með handlaug. Handklæðaofn, gólf flísalagt og hluti veggja.
Möguleiki er á að hafa þvottavél uppi í íbúð þar sem það er tengi inn á baðherbergi.
Herbergi í kjallara með glugga.
Sér geymsla er í sameign og sameiginleg hjólageymsla, sameiginlegt þvotthús og þurrkherbergi með snúrum.
Stigagangur og sameign er snyrtileg.
Nýlega er búið að skipta um glugga og mála framhlið og gafl hússins.
Vel skipulögð eign á eftirsóttum stað. Stutt í skóla, leikskóla, sund og íþróttasvæði KR.
Göngufæri við sjóinn og útvistarsvæði við Ægissíðu og þar í kring.Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 898 5599 eða halldor@ibudaeignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 30% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu skv. gjaldskrá.
-Lántökugjald vegna veðlána, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.