Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir fjölbýlishús í 112, Reykjavíkurborg
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynna fallega 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotafleti til suðurs út frá stofu í góðu lyftuhúsi við Jöfursbás 7B.
Stærð íbúðarinnar er skráð skv. HMS 64,50 fm þar af er 6,6 fm geymsla í sameign. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, útgegnt á timburlagða verönd með skjólvegg úr stofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og eitt svefnherbergi. Aukin lofthæð yfir 280 cm. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Innanhúshönnuður kom að hönnun allra íbúða:
Frekari lýsing íbúðar:
Forstofa : Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Eldhús : Falleg og vönduð innrétting frá Voke III með Quartz stein á borðplötu og efri skápum sem ná til lofts. Innbyggður ísskápur með frysti, innfelld uppþvottavél ásamt bakaraofni og helluborði, öll heimilistæki eru frá AEG.
Stofa : Björt og rúmgóð með góðum gluggum á tvo vegu. Utgengt á 8, fm tímburlagðan sérafnotaflöt með skjólvegg.
Baðherbergi : Falleg innrétting með granitborðplötu, speglaskápur á vegg fyrir ofan vask. Flísalagt gólf og hluti veggja.Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi : Rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.
Geymsla : 6,6 fm á sér geymslugangi í kjallara hússins.
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara. Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.
Eignin er staðsett í stórglæsilegu nýju íbúahverfi sem nú er að rísa við strandlengju Gufuness í Reykjavík. Hverfið sem er að byggjast upp er suðupottur skapandi greina og einkennist í dag af skapandi iðnaði, kvikmyndagerð, listsköpun og íbúðum. Óþrjótandi útivistarmöguleikar í mikilli náttúruparadís. Í Spönginni má finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
14/03/2023 | 4.420.000 kr. | 58.400.000 kr. | 64.5 m2 | 905.426 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
112 | 63.1 | 56,5 | ||
112 | 73.2 | 59,9 | ||
112 | 62.2 | 59,9 | ||
112 | 64.3 | 58,3 | ||
112 | 57.3 | 55,9 |