Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Hrísateigur 32

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
217 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
736.866 kr./m2
Fasteignamat
155.150.000 kr.
Brunabótamat
104.450.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Módernisti og funksjónalisti.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1960
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2017057
Landnúmer
104095
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Lítill opnanlegur gluggi fyrir ofan svalarhurð í barnaherbergi á efri hæð er með sprungu í innra gleri.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallegt og vel skipulagt raðhús á þremur hæðum ásamt bílskúr og aukaíbúð í kjallara á einum eftirsóttasta stað í Laugardalnum.   Um er að ræða góða fjölskyldueign sem sameinar rúmgóð og björt rými, fjögur svefnherbergi, skjólgóðan suðurgarð, sérinngang að aukaíbúð og fjölmarga möguleika fyrir stórar fjölskyldur.  Íbúðarými er skráð 192,1 fm. og bílskúr 24,9 fm.  Samtals birt stærð 217,0 fm.  Einnig er óskráð rými í bílskúr.  Falleg og snyrtileg aðkoma er að húsinu, húsið hefur m.a. verið múrviðgert og málað,  þak nýlega endurnýjað. Útitröppur hafa verið viðgerðar og hitalögn í stétt fyrir framan hús. Gott húsfélag og virkt samstarf. 

Falleg og vel staðsett eign í rólegu og eftirsóttu hverfi í Laugardalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Líkamsrækt og sundlaug Laugardals í næsta nágrenni.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Nánari lýsing aðalhæð: 
Aðalhæð skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu, opið hol og gestasalerni. Úr stofu er útgengt út í garð til suðurs. Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og suður svalir.
Forstofa er með fatahengi og efri skápum.
Gestasalerni er staðsett við forstofu. Flísalagt að hluta, með salerni, vaski og góðum opnanlegum glugga.
Eldhús er með eldri innréttingu, borðkrók og stórum opnanlegum glugga. Parket á gólfum.
Gangur/hol er flísalagður með fataskápum og fallegum stiga upp á efri hæð.
Stofa og borðstofa er í stóru og björtu alrými, parket á gólfum.  Útgengt út á svalir til suðurs með tröppum niður í garð.  Sér garður, stór og gróinn.
Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð, öll með fataskápum.  Úr tveimur svefnherbergjum sunnanmegin er útgengt út á svalir til suðurs.
Baðherbergi á efri hæð er með eldri vaskinnréttingu, salerni og sturtubaðkari.

Nánari lýsing kjallari og aukaíbúð:  Í kjallara er sérinngangur fyrir framan hús en einnig er innangengt niður í kjallara frá aðalhæð hússins.  Kjallari telur forstofu/opið hol, geymslu (með tengi fyrir salerni), þvottahús með sturtu og lagnarými. Aukaíbúð er tveggja herbergja með eldhúsi, stofu og svefnherbergi ásamt sér salerni.  
Forstofa er flísalögð, þar teppalagður stigi upp á efri hæð hússins.
Geymsla er í forstofu, en möguleiki að setja upp salerni þar sem tengi eru til staðar.
Þvottahús er rúmgott með vaskinnréttingu og opnanlegum gluggum, gólf flísalagt.  Í þvottahúsi er jafnframt lagnarými og flísalagður sturtuklefi sem hefur verið nýttur fyrir aukaíbúð.
Eldhús aukaíbúðar er með fallegri hvítri innréttingu, svartri borðplötu og góðum efri skápum.  Helluborð og bökunarofn. Í eldhúsrými/holi er jafnframt fataskápur, parket á gólfum
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfum.  Stofa og svefnherbergi snúa út í garð, léttir milliveggir á milli rýma.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með parketi á gólfum.
Baðherbergi er með vaski, spegli og salerni. 

Nánari lýsing bílskúr: Bílskúr er staðsettur í bílskúrslengju meðfram götu. Rafmagn og hiti til staðar. Gluggar eru í rými á efri hæð. Á neðri hæð bílskúrs er óskráð rými, um 24,9 fm. sem hefur verið nýtt sem smíðaverkstæði.
Bílastæði íbúðar fyrir framan bílskúr en jafnframt eru sameiginleg stæði á lóð fyrir framan hús.

Staðsetning er einstaklega góð og miðsvæðis.  Laugarnes- og Laugalækjarskóli eru í nokkurra mínútna fjarlægð, World Class og sundlaug Laugardals ásamt íþróttasvæði Þróttar og öllu því sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Verslun og þjónusta skammt frá og stutt í stofnbrautir. Arkitekt hússins er Gísli Halldórsson og var það teiknað árið 1960.  Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr.156.400.000,-

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1975
24.9 m2
Fasteignanúmer
2017057
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.950.000 kr.

Myndir (60)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Arnarhlíð 4
102 Reykjavík
131.2 m2
Fjölbýlishús
413
914 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin