Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2026

Ásvallagata 46

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
91.6 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
839.520 kr./m2
Brunabótamat
44.700.000 kr.
Byggt 1951
Jarðhæð
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20024086
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir mjög fallega og mikið endurnýjaða  91,6 fm, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í 4-býlishúsi á eftirsóttum stað í vesturbænum. Sér inngangur. Íbúðin skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur og opið eldhús, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi, gang og forstofu. Geymsla undir tröppum. Franskir gluggar eru í íbúðinni sem setja skemmtilegan svip á íbúðina. Um er að ræða eitt af þessum gömlu virðulegu húsum í vesturbænum. Nýlega standsettur fallegur garður til suðurs með hellulagðri verönd í bakgarði.

Sækja söluyfirlit

Nánari lýsing.  Bjart og opið alrými þar sem eldhús og borðstofa mynda hjarta heimilisins. Eldhúsið hefur verið endurnýjað með fallegri sérsmíðaðri innréttingu í klassískum stíl, vönduðum borðplötum og góðu vinnurými. Stórir gluggar hleypa ríkulegri birtu inn í rýmið og fallegir franskir gluggar setja einstakan svip á eignina.
Tvær samliggjandi stofur skapa skemmtilega og sveigjanlega nýtingu þar sem auðvelt er að hafa bæði sjónvarpsstofu og setustofu eða nýta annað rýmið sem vinnuaðstöðu eftir þörfum. Íbúðin er einstaklega björt og rúmgóð og nýtur sín vel vegna glugga á fleiri en einni hlið.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með góðu skápaplássi. Baðherbergið hefur verið endurnýjað með stílhreinum flísum, góðri sturtuaðstöðu og fallegum innréttingum sem falla vel að heildaryfirbragði eignarinnar.
Fallegt harðparket er á meginhluta íbúðarinnar sem gefur hlýlegt yfirbragð. Innréttingar, hurðir og frágangur bera þess merki að vel hefur verið staðið að endurbótum á undanförnum árum.
Húsið sjálft er eitt af þessum klassísku og virðulegu Vesturbæjarhúsum sem njóta mikilla vinsælda. Nýlega hefur verið lagður mikill metnaður í garðinn sunnan við húsið þar sem er fallegt gróið umhverfi og stór hellulögð verönd sem nýtist vel til útiveru, grillveisla og samveru fjölskyldu og vina. Þá fylgir íbúðinni geymsla undir tröppum.

Framkvæmdir í íbúðinni:
Árið 2022: Gluggar pússaðir og málaðir.
Árið 2021: Íbúðin máluð. Nýr fataskápur í hjónaherbergi. Skóskápur og hillur settar í forstofu.
Árið 2016: Eldhúsið endurnýjað, innrétting sérsmíðuð. Baðherbergi endurnýjað. Neyslulagnir í íbúðinni endurnýjaðar. Raflagnir í íbúðinni endurnýjaðar að hluta til. Gólf í íbúðinni flotað, slétt og settur gólfhiti (gólfihiti settur í forstofu, gang, stofur, eldhús og baðherbergi). Gólfefni íbúðinni endurnýjuð.
Árið 2015: Gluggar og gler í íbúðinni endurnýjað. 

Framkvæmir við húsið:
Árið 2021: Þakrennur endurnýjaðar að hluta til og hreinsaðar.
Árið 2020: Grindverk við lóðina endursteypt að hluta.
Árið 2018: Garður standsettur, jarðvegsskipti og sett torf. Bakgarður hellulagður. Nýjar hellur lagðar við inngang í húsið og umhverfis og er hiti í stétt.
Árið 2016: Sett dren (við þrjár hliðar hússins). 

Um að ræða sérlega fallega eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, Miðbæinn og allt það sem gerir Vesturbæinn að einu vinsælasta hverfi Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veita: 
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í síma 788 9030 eða ulfar@fastborg.is
Börkur Hrafnsson, löggiltur fasteignasali í síma 892 4944 eða borkur@fastborg.is
  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 85.000,-
 

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stakkholt 2b (íbúð501)
Stakkholt Aðalmynd.jpg
Stakkholt 2b (íbúð501)
105 Reykjavík
104.8 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
5P1A6759-enhanced.jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
101 Reykjavík
104.3 m2
Fjölbýlishús
321
1198 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (0227)
Hleðslustöð
DJI_0824_v2.jpg
Skoða eignina Laugaborg (0227)
Laugaborg (0227)
105 Reykjavík
81.6 m2
Fjölbýlishús
312
998 þ.kr./m2
81.400.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 103
Efsta hæð
Skoða eignina Laugavegur 103
Laugavegur 103
105 Reykjavík
212.6 m2
Fjölbýlishús
4
938 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin