Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Akurvelli 1, 221 Hafnarfirði.
Falleg 3ja herbergja, 90,8 fm, íbúð á fjórðu hæð með fallegt útsýni.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, stofu, eldhús, þvottahús,svalir og sérgeymslu.
Lýsing eignar:
Snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla er malbikuð.
Anddyri íbúðar er rúmgott með flísar á gólfi og fataskáp.
Innaf anddyri er hol.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með parket á gólfi. Þar er útgengi út á svalir með fallegt útsýni.
Eldhús hefur viðarinnréttingu, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Svefnherbergin eru tvö bæði mjög rúmgóð með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið hefur flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, þar er skolvaskur.
Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.