MIÐKRIKI RANGÁRÞINGI EYSTRA. Um er að ræða einbýlishús og stóran bílskúr Húsin eru staðsett á 5.600 fm eignarlóð skammt austan við þéttbýlið á Hvolsvelli. Aðgengi er frá Suðurlandsvegi.
Einbýlishúsið, sem telur, kjallara, hæð og ris er byggt úr timbri á steyptan kjallara og er klætt að utanverðu með bárujárni, stærð 161,6 fm. Ytra byrði kjallara er múrað og málað. Skipt hefur verið um glugga á hæð og í risi, ennfremur að hluta til í kjallara. Inngangur er á hæðina, sem telur: Anddyri með dúk á gólfi. Baðherbergi með dúk á gólfi, baðkeri og lítilli innréttingu. Gang með plastparketi á gólfi. Herbergi með plastparketi á gólfi. Eldhús með plastparketi á gólfi og þokkalegri innréttingu. Rúmgóða stofu með plastparketi á gólfi. Af hæðinni liggur timburstigi upp á efstu hæðina, sem er eitt rými undir súð. Það er einangrað og hefur verið klætt að meiri hluta. Rýmið er án gólfefna. Timburstigi er af hæðinni niður í kjallarann, sem telur: Geymslurými án gólfefna, þar er jafnframt sérinngangur í kjallarann. Gang með dúk á gólfi. Þvottahús með máluðu steingólfi. Þrjú herbergi, tvö þeirra eru með plastparketi á gólfum og eitt með máluðu timburgólfi, skápur er í einu þeirra. Húsið er kynt með rafmagni. Húsið þarfnast viðhalds og endurbóta.
Bílskúrinn er járnklætt stálgrindarhús á steyptum grunni með steyptri botnplötu, stærð 122,7 fm. Húsið er einangrað og klætt að innan með stálklæðningu. Á því eru innkeyrsludyr og 2 gönguhurðir.
Á lóðinni eru einnig 3 gamlar útigeymslur og gróðurhús.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.
Allar nánari upplýsingar veita: Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.