Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Lautasmári 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
79 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
872.152 kr./m2
Brunabótamat
44.050.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22280501
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lggf. kynna nýja eign í sölu í Lautasmári 5 - 3ja herbergja íbúð á 7. hæð með útsýni og yfirbyggðum svölum í lyftuhúsi.
Um er að ræða góða  3 herb. íbúð á 7. hæð með suðursvölum með svalalokun í lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Kópavogi.Vinsælt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, ýmsa þjónustu, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir og útivist í Kópavogsdalnum.
Eignin er skráð 79,0 fm. hjá Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 73,9 fm. og sérgeymsla í sameign 5,1 fm.
Íbúðin skiptist í; forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla eru i sameign í kjallara.   
Forstofa með góðum fataskáp. Inn af forstofu er flísalagt þvottahús með skolvaski. 
Í opnu alrými er eldhús og stofur með gluggum mót suðri og góðri birtu.
Eldhús er með viðarinnréttingu, bakaraofn er í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og ágætt skápa og  bekkpláss.
Stofan er ágætlega rúmgóð þannig að þar er pláss fyrir borðstofu og setustofu. Stórir suðurgluggar og hurð út á suðursvalir sem eru með svalalokun.
Baðherberginer með innréttingu, baðkari með glervegg og upphengdri sturtu, flísalagt í hólf og gólf. 
Hjónaherbergi, er rúmgott með parket á gólfi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi og góðum skáp.
 Í sameign á jarðhæð er sér geymsla þessara íbúðar 5,1 fm. auk sameiginlegrar hjóla og vagnageymslu. 
Sameign er snyrtileg og vel hugsað um almennan rekstur, gott aðgengi er að húsinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Selector2.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
77.6 m2
Fjölbýlishús
211
1069 þ.kr./m2
82.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
H10_i106.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
80.5 m2
Fjölbýlishús
211
994 þ.kr./m2
79.990.000 kr.
Skoða eignina Engjadalur 2
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Engjadalur 2
Engjadalur 2
260 Reykjanesbær
119.8 m2
Fjölbýlishús
413
542 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam003.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
66.1 m2
Fjölbýlishús
211
1134 þ.kr./m2
74.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin