Fasteignasalan Byggð 464-9955-EinkasalaUm er að ræða jörðina Brúnagerði í Fnjóskadal, jörðin er um 300 ha. að stærð.
Einstakt tækifæri til þess að taka við rekstri stækkandi ferðaþjónustufyrirtækis eða bara til þess að flytja í fallega sveit. Um er að ræða vel uppbyggða jörð í Fnjóskadal.
Íbúðarhús er sex herbergja á einni hæð samtals 158,5 fm. og er mikið upprunalegt. Útihús eru nokkur og hefur sumum verið breytt í rekstrarlegum tilgangi. Fjárhús fyrir um 150 fjár ásamt áfastri hlöðu. Minnkahúsið sem er rúmir 1.200 fm hefur verið breytt í aðstöðu fyrir dýr í húsdýragarðinum, eldhús, verslun, inni leiksvæði og 300 fm veitingasal.
Ræktað land er rúmir 15 ha. og girðingar í góðu lagi.Búið er að gróðursetja þó nokkuð af skjólbeltum sem og dálittlum skógi.
Jörðin býður upp á mikla möguleika á besta stað á norðurlandi og er einungis í 20 mín aksturfjarlægð frá Akureyri
Heímasíða Daladýrðar Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955