Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Hafnarbraut 3

EinbýlishúsVestfirðir/Hólmavík-510
181 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
275.691 kr./m2
Brunabótamat
63.400.000 kr.
Byggt 1997
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22351631
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna til sölu fallegt og reisulegt 181 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Hafnarbraut 3 á Hólmavík. Eignin er vel skipulögð með björtum og rúmgóðum vistarverum, þremur svefnherbergjum, tveimur stofurýmum og innbyggðum bílskúr. Frá húsinu er einstaklega fallegt útsýni til sjávar.
Húsið er byggt árið 1997 úr timbri og stendur á 875 fm lóð. Innbyggður bílskúr er 31,6 fm og er innangengt í hann úr íbúðinni. Við húsið er einnig pallur sem snýr til suðvesturs.
Búið er að endurnýja ofna í húsinu og hitakútinn.

** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934**


Skipulag eignarinnar
Neðri hæð: Forstofa, stofa, eldhús með borðkrók, búr/geymsla, gestasalerni, þvottahús og innangengt í bílskúr.
Efri hæð: Rúmgott og bjart sjónvarpshol með fallegu sjávarútsýni, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:

Forstofa: Snyrtileg forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Stórir gluggar hleypa inn góðri birtu og skapa hlýlegt andrúmsloft. Góð tenging er við eldhús og borðstofurými.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Í eldhúsinu er borðkrókur við glugga og þaðan nýtur fallegs útsýnis til sjávar.
Búr/geymsla: Hagnýtt geymslurými með hillum og dúk á gólfi.
Gestasalerni: Flísar á gólfi, handlaug og salerni.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með innréttingu, góðu skápaplássi og vaski. Þaðan er innangengt í bílskúrinn.

Efri hæð:
Sjónvarpshol: Rúmgott og bjart alrými með fallegri lofthæð, parketi á gólfi og gluggum með glæsilegu útsýni til sjávar. Panelklæðning í lofti gefur rýminu hlýlegan og skemmtilegan karakter. Rýmið nýtist vel sem önnur stofa, sjónvarpsaðstaða eða fjölskyldurými.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi og fallegri timburklæðningu í lofti. Útgengt er á svalir úr herberginu. Inn af herberginu er aukarými sem mætti nýta sem fataherbergi.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með parketi á gólfi og súðarlofti.
Svefnherbergi III: Herbergi með parketi á gólfi og fallegri timburklæðningu í lofti.
Baðherbergi: Bjart og snyrtilegt baðherbergi. Við endurbætur árið 2025 var meðal annars smíðaður milliveggur, lagðar parketflísar og sett upp ný baðinnrétting og nýr sturtuklefi. Gluggi er á baðherberginu.

Bílskúr og lóð:
Bílskúr: Innbyggður 31,6 fm bílskúr með innangengi úr þvottahúsi. Bílskúrinn býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Lóð: Húsið stendur á 875 fm lóð og við húsið er pallur sem snýr til suðvesturs. Fallegt sjávarútsýni er frá eigninni.

Hafnarbraut 3 er fallegt og rúmgott fjölskylduhús með hlýlegum yfirbragði, góðu skipulagi og fallegu sjávarútsýni. Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem vilja rúmgott heimili á Hólmavík.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar hjá Maríu Mjöll, Borg fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 
 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smárarimi 25
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Smárarimi 25
Smárarimi 25
112 Reykjavík
188,2 m2
Einbýlishús
4
838 þ.kr./m2
157.750.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 7
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Akralundur 17
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Akralundur 17
Akralundur 17
300 Akranes
183,6 m2
Raðhús
524
599 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 9
Bílskúr
Skoða eignina Hulduholt 9
Hulduholt 9
603 Akureyri
180,4 m2
Raðhús
513
Fasteignamat 89.250.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin