Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Eskivellir 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
111.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
717.880 kr./m2
Brunabótamat
58.750.000 kr.
Byggt 2006
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22742341
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða virkilega fallega 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum timburpalli sem snýr í hásuður. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 103,2 fm og geymslan er 8,1 fm eða samtals 111,3 fm. Þrjú rúmgóð svefnherbergi - þvottahús innan íbúðar - stór timburpallur - geymsla íbúðar á hæðinni.

Nánari lýsing eignar: Sérinngangur. Komið er inn í forstofu með fataskáp. Á hægri hönd við inngang er svefnherbergi I með fataskáp. Frá forstofu tekur við parketlagður gangur. Svefnherbergi II með fataskáp. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, eikarinnrétting, hornbaðkar og upphengt salerni. Fallegt eldhús með hvítri háglans innréttingu, eygja og gluggi á eldhúsi. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á mjög rúmgóðan timburpall sem snýr í hásuður. Svefnherbergi III er mjög rúmgott með fataskáp. Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og skolvaski. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.    

Íbúðin er staðsett á vinsælum og fjölskylduvænum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, matvörubúðir, apótek, leikskóla og skóla.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 56 Til leigu,
Áshamar 56 Til leigu,
221 Hafnarfjörður
91,5 m2
Fjölbýlishús
43
4 þ.kr./m2
390.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 íb. 403
Bílastæði
Áshamar 56 íb. 403
221 Hafnarfjörður
92 m2
Fjölbýlishús
43
804 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 íb. 309
Bílastæði
Áshamar 56 íb. 309
221 Hafnarfjörður
104,9 m2
Fjölbýlishús
313
777 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 íb. 210
Bílastæði
Áshamar 56 íb. 210
221 Hafnarfjörður
92,9 m2
Fjölbýlishús
413
818 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin