Fasteignaleitin
Skráð 29. okt. 2024
Deila eign
Deila

Ystidalur 5a

Nýbygging • ParhúsAusturland/Eskifjörður-735
119.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
625.209 kr./m2
Fasteignamat
41.150.000 kr.
Brunabótamat
65.650.000 kr.
Mynd af Heimir Arnfinnsson
Heimir Arnfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2339438
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Austurlands kynnir nýja, vandaða og viðhaldslétta parhúsíbúð á Eskifirði.
Íbúðin afhendist fullbúin að utan sem og innan með steyptu bílaplani og frágenginni lóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Ystidalur 5a, Eskifirði: Um er að ræða 4ra herbergja nýbygginu með mikilli lofthæð, 119,8m2 parhúsíbúð á einni hæð. Leikskólinn svo gott sem hinumeginn við götuna og sundlaug bæjarins nánast í bakgarðinum.

Eignin skiptist upp i forstofu, opinn gang, eldhús og stofu í góðu opnu rými, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Húsið er klætt með vandaðari grárri klæðningu (Cembrit sementsplötur). Þakkantur er klæddur með svörtu blikki.

Húsið er hannað með gott hjólastólaaðgengi í huga
- Gólfhiti með þráðlausum stýringum er í flestum rýmum eignarinnar
- Innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Trévangi
- Á gólfum er hágæða vinilparket frá Gerflor en flísar á forstofu og votrýmum
- Steypt bílaplan með ruslatunnuskýli

Rúmgott fjölskylduhús á frábærum stað!

Forstofa: Er nokkuð rúmgóð, flísalögð. Góðir fataskápar.
Eldhús: Er í opnu alrými ásamt stofu. Eldhúsinnrétting og eyja sérsmíðaðar hjá Trévangi.
Stofa/borðstofa: Gott opið rými samtengt eldhúsi með útsýni til austurs út um stóra, gólfsíða glugga. Eikarlitar hljóðplötur í loftum.
Þvottahús: Flísalagt eins og forstofa, góð sérsmíðuð innrétting frá Trévangi ásamt vaski.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, 14,4m2. Vinilparketlagt með stórum og góðum fataskápum.
Svefnherbergin: 2 svefnherbergi utan hjóna, bæði með hágæða vinilparketi og tvöföldum fataskápum frá Trévangi.
Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfi, walk-in sturta með sturtugleri, rúmgóð innrétting og upphengt salerni. 
Geymsla: Flísalögð geymsla, 4,1m2 að flatarmáli.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m/vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/20244.590.000 kr.108.203.000 kr.210.2 m2514.762 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ystidalur 5A NÝBYGGING parhús
Ystidalur 5A NÝBYGGING parhús
735 Eskifjörður
119.8 m2
Parhús
413
625 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarholt 5
Skoða eignina Stekkjarholt 5
Stekkjarholt 5
730 Reyðarfjörður
159.7 m2
Parhús
413
490 þ.kr./m2
78.300.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarholt 3
Skoða eignina Stekkjarholt 3
Stekkjarholt 3
730 Reyðarfjörður
159.7 m2
Parhús
413
490 þ.kr./m2
78.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin