Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Hamraborg 32, 200 Kópavogi;
Bjarta, fallega og rúmgóða 3ja herbergja enda útsýnisíbúð á 8. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk miðsvæðis í 200 Kópavogi.
Húsið Hamraborg 32 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár og hafa íbúar þess innangengt aðgengi að stæði í sameiginlegri bílageymslu.
- Birt stærð skv. HMS er 69,9 fm
- 8. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir
- 3ja herbergja - 2 rúmgóð svefnherbergi
- 2025: Nýr gluggi og svalahurð í hjónaherbergi
- 2025: Nýtt harðparket á bæði svefnherbergin
- 2025: Ný uppþvottavél
- 2018: Húsið múrviðgert og málað (veggir, tréverk, svalahandrið og svalagólf)
- 2018: Skipt var um gler í glugga í stofu.
-Nýleg lyfta.
-Nýlegur myndavéladyrasími í húsinu og eldvarnarhurð inn í íbúð.
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, parketlagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með ljósri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum og hvítum flísum á milli skápa. AEG helluborð, Whirlpool Star clean ofn og uppþvottavél í vinnuhæð. Möguleiki að hafa þvottavél í eldhúsi.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við eldhús. Parketlögð og björt með stórum gluggum, stórbrotnu óhindruðu útsýni til norðurs.
Svefnherbergi (hjónaherbergi): Af stofu. Parketlagt með skápum. Þaðan er útgengt á suður svalir með óhindruðu útsýni.
Svefnherbergi: Parketlagt með skáp með.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með horn sturtuklefa, salerni, hvítri vaskinnréttingu og nýjum spegla skápum.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á hæðinni með sameiginlegum vélum. Málað gólf og útgengi á rúmgóðar svalir til norðurs. Þvottasnúrur í þvottaherbergi og á svölum.
Sér geymsla: Er í kjallara. Málað gólf og hillur.
Hjóla- og vagnageymsla: Er í kjallara með máluðu gólfi, hjólasnögum og glugga til norðurs.
Bílageymsla: Er í kjallara, innangengt úr lyftu. Gengið inn í hana frá sameign. Sameiginleg stæði í bílageymslu. Aðgangur er tengdur bílnúmeri og er gjaldfrjáls fyrir einn bíl á hverja íbúð.
Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og fallega, 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi sem hefur fengið gott viðhald með aðgengi að stæði í lokaðri bílageymslu, á besta stað í Hamrborg, 200 Kópavogi.
Góð staðsetning; Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Kópavogi með fjölbreyttri verslun og þjónustu í kring og Kópavogslaug í göngufæri. Stutt er út á stofnbraut og í Fossvogsdalinn.
Öll skólastig eru í næsta nágrenni; leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli.
Í Geislagarði, sem garður á milli blokkana, eru framkvæmdir í gangi á vegum Kópavogsbæjar sem eru langt komnar, meðal annars endurnýjað drenkerfi og snjóbræðslu, hellulögn, gróður, leiktæki. https://eu-west-2.graphassets.com/A9pITFgTsTbObglL0XJzPz/cmdoqngj0c09o07mu238moa72
Á heimasíðu Kópavogs er fjallað um nýjan miðbæ í mótun, göngugötuna, þjónustu og verslanir. Hér er hlekkur á heimasíðuna: https://midbaer.kopavogur.is/
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805