Fasteignaleitin
Opið hús:20. okt. kl 17:45-18:15
Skráð 9. okt. 2026

Ásgarður 12

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
191.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
101.900.000 kr.
Fermetraverð
532.671 kr./m2
Fasteignamat
99.850.000 kr.
Brunabótamat
101.050.000 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2086896
Landnúmer
126547
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta. Eir lagnir.
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að mestu
Þak
Bárujárn endurnýjað, ártal ekki vitað. Þakkantur þarfnast viðgerðar.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Ofnar
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Múrskemmdir eru við útidyrahurð, bílskúrshurð og tröppur, auk sprungna í bílaplani. Þakkantur er kominn á tíma og gólfefni hússins eru að miklu leyti komin á tíma.
Snjóbræðslukerfi í innkeyrslu og stétt var tekið úr sambandi og slaufur tæmdar þegar heita vatnið fór af Reykjanesbæ. Kerfið hefur ekki verið gangsett síðan og virkni þess er óstaðfest.
Að sögn seljanda hefur tvisvar á síðustu fimm árum orðið vart við leka frá þaki viðbyggingar þar sem þvottahúsið er. Lekinn hefur komið fram við tilteknar veðuraðstæður. Seljandi mun láta lagfæra lekann fyrir afhendingu.
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Ásgarður 12, 230 Reykjanesbær

Rúmgott og fallegt einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og bílskúr við Ásgarð 12 í Keflavík. Eignin býður upp á góða herbergjaskipan, stofu og sjónvarpsstofu með útgengi á rúmgóða, afgirta timburverönd með heitum potti. Húsið stendur á 966 m² lóð með stórum grasflötum, trjágróðri og rúmgóðri innkeyrslu. Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi og gluggar í íbúðarhluta hússins voru endurnýjaðir árið 2025.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 191,3 m², þar af er íbúðarhús 148,2 m² og bílskúr 43,1 m². Húsið er byggt árið 1973. Íbúðarhúsið er merkt 01-0101 og bílskúrinn 02-0101. Fastanúmer eignarinnar er F2086896.

Lýsing og skipulag eignar:
Anddyri
er með rúmgóðum, dökkum fataskáp með skúffum og spegli.
Eldhús er með eikarinnréttingu, eyju, góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Uppþvottavél fylgir með eigninni. Í eldhúsinu er einnig aðstaða fyrir eldhúsborð.
Stofa er með parketi á gólfi og rúmar einnig borðstofu.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á afgirta timburverönd.
Fjögur svefnherbergi eru í eigninni, þar af eitt inn af anddyri. Fataskápar eru í hluta herbergjanna.
Baðherbergi er með baðkari og sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, innréttingu með vaski, speglaskápum og glugga. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Minna baðherbergi var endurnýjað árið 2024. Þar eru gráar flísar á gólfi og veggjum, sturta með svörtum blöndunartækjum, upphengt salerni, dökk innrétting með vaski og hringlaga spegill með lýsingu.
Þvottahús er með innréttingu með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er útgengt á verönd og innangengt í bílskúr.
Gólfefni eru parket á stofu og svefnherbergjum en flísar í anddyri, eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi.
Bílskúrinn er 43,1 m² að stærð og er innangengur frá þvottahúsi. Rafdrifinn hurðaopnari. Epoxý er á gólfi og hillur ásamt vinnuborði fylgja með eigninni.

Byggingarlýsing:
Húsið er steinsteypt, byggt árið 1973. Þakjárn hefur verið endurnýjað af fyrri eigendum samkvæmt upplýsingum seljanda. Gluggar í íbúðarhluta hússins voru endurnýjaðir árið 2025 og settir nýir gluggar frá BYKO í sambærilegum stíl og þeir upprunalegu. Gluggar á bílskúr sem snúa að götu og svalahurð hafa ekki verið endurnýjuð.

Lóð og aðkoma:
Húsið stendur á 966 m² leigulóð sem er tyrfð að stórum hluta, með rúmgóðum grasflötum og trjágróðri. Framan við húsið er steypt innkeyrsla og stétt með stimpluðu yfirborði. Við bakhlið hússins er rúmgóð og afgirt timburverönd með skjólveggjum og heitum potti. Göngustígur liggur meðfram lóðinni.

Framkvæmdir að sögn seljanda:
2026: Þakkantur hússins málaður að hluta.
2025: Skipt um alla glugga í íbúðarhluta hússins og settir nýir gluggar frá BYKO í sambærilegum stíl og þeir upprunalegu.
2024: Minna baðherbergi endurnýjað. Vegna leka í lögnum voru innsteyptar eirlagnir fjarlægðar og nýjar álpex-lagnir lagðar frá bílskúr að baðherbergi. Veggur var grindaður út, vatnsvörn sett á og rýmið flísalagt. Anddyri var flísalagt.
2023: Þakkantur hússins málaður.
2021: Skipt hefur verið um tengla og rofa og rafmagnsstrengir endurnýjaðir í flestum herbergjum. Hluti stofu var stúkaður af með léttum vegg og útbúið herbergi.
Ártal ekki vitað: Þakjárn var endurnýjað af fyrri eigendum.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/05/202157.600.000 kr.62.000.000 kr.191.3 m2324.098 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
43.1 m2
Fasteignanúmer
2086896
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.750.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnoðravellir 44
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Hnoðravellir 44
Hnoðravellir 44
221 Hafnarfjörður
209 m2
Einbýlishús
614
716 þ.kr./m2
149.700.000 kr.
Skoða eignina Bæjargata 17
Hleðslustöð
IMG_5768.JPG
Skoða eignina Bæjargata 17
Bæjargata 17
210 Garðabær
207,1 m2
Raðhús
624
965 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Túngata 1
Skoða eignina Túngata 1
Túngata 1
625 Ólafsfjörður
201,9 m2
Einbýlishús
614
208 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Skerjabraut 17
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Skerjabraut 17
Skerjabraut 17
245 Sandgerði
145 m2
Raðhús
413
537 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin