Einstakt og spennandi 163,8 fm einbýlishús með stórum bílskúr á eftirsóttum stað í hjarta Hafnarfjarðarbæjar sem býður upp á mikla möguleika. Um er að ræða 122,5 fm timbureinbýlishús byggt árið 1997 ásamt 41,3 fm bílskúr. Húsið er byggt í áföngum og er með timburklæðningu og steni plötum. Þakið er bárujárnsklætt.
Einbýlishúsið er með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sólskála og skjólsælum bakgarði. Í bakgarðinum er pallur og útivistaraðstaða undir bílskúr ásamt tveimur geymslum, önnur er köld en hin er með hitagrind. Bílskúrinn er ekki að fullu frágenginn að innan en er með nýlögðu epoxy á gólfi og múraða veggi. Hiti er í gólfi, rafmagn og heitt og kalt vatn. Möguleiki á að innrétta bílskúrinn sem aukaíbúð sem gefið getur góðar leigutekjur.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Nánari lýsing eignar:
Forstofan með flísum. Hiti í gólfi.
Svefnherbergin eru tvö. Annað svefnherbergið er inn af forstofu en það hefur verið notað sem gestaherbergi. Hjónaherbergið er með parketi og skápum.
Baðherbergið með flísum á gólfi, upphengdu salerni, innréttingu og þvottaaðstöðu ásamt baðkari með sturtu.
Eldhúsið með innbyggðum ísskáp. Tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á eldhúsvegg.
Borðstofan með parketi.
Sólskálinn er stór og bjartur og hannaður af Ólafi Elíassyni listamanni að sögn seljenda.
Pallurinn er stór og góður og garðurinn snyrtilegur og vel gróinn
Stór garður sem snýr í suður og er vitinn rétt fyrir utan lóðarmörk eignarinnar.
Geymslurnar eru tvær, önnur er þar sem hitagrindin er en þar er búið að setja upp hillur. Hin geymslan er köld.
Bílskúrinn er 41,3 fm með hita í gólfi og pússuðum veggjum. Nýlagt epoxy á gólf. Tvö bílastæði inni á lóð.
Hús þetta er á afar athygliverðum stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem hinn virðulegi innsiglingarviti blasir við til austurs. Vitinn var byggður um 1900 og þjónaði sínum tilgangi, sem innsiglingaljós, í tæpa átta áratugi. Vitastígur 10 er perla sem býður upp á marga möguleika á þessum eftirsótta stað.
Skráning á byggingarári hússins er röng hjá HMS, upprunalega er elsti hluti þess byggður árið 1923, og svo byggt við það í áföngum, síðast árið 1997.
Helstu viðbyggingar við Vitastíg eru þessar:
1944, viðbygging úr holsteini við austurhlið hússins. (fundargerðarbók byggingarnefndar, brunavirðing)
1949, samþykkt viðbygging óvíst hvar eða hvernig. (fundargerðarbók byggingarnefndar)
1997, húsið mælt upp og stækkað að bílgeymslu. Ný bílgeymsla. (teikningasafn Hafnarfjarðar)
Viðgerðaþörf: Kominn er m.a. tími á þakviðgerð en vart hefur verið við leka í þaki. A.m.k. hluti glugga þarfnast viðgerða/skipta. Klæðning, þ.m.t. loftaklæðning, þarfnast skoðunar/viðgerða. Rafmagn þarfnast skoðunar/viðgerða. Þörf kann að vera á frekari endurbótum, en annar seljanda er dánarbú og þekkir sá seljandi því takmarkað til ástands hússins. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að skoða eignina vel og fá til þess sérfræðing í húsaskoðun og ástandsmati.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is