Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu svo gott sem nýtt, snyrtilegt og flott raðhús við Hamravík 17. Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í Jórvíkurhverfi og húsið stendur í útjaðri hverfisins þar sem stutt er út í náttúruna. Húsið er 100,4 fm, 4ra herbergja, byggt úr timbri, klætt að utan með ál utanhússklæðningu í bland við standandi Bond klæðningu. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu og steyptu ruslatunnuskýli.
Nánari lýsing:
Forstofa með fínum fataskáp. Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfi, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, spegill, skápur og "walk inn" sturta með glervegg og innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Vönduð elhúsinnrétting, veggföst eyja sem hægt er að sitja við, ljúflokur á öllum skúffum og skápum. Heimilistæki, ísskápur/frystir og uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á lóð.
Svæðaskiptur gólfhiti með stýringum, innréttingar og skápar frá Voke-3, harðparket frá Byko og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré. Forritanleg ljósastýring/rofar - Plejd. Varmaskiptir á neysluvatni. Bílaplan er hellulagt en baka til er grasflöt.
Virkilega smekkleg og snyrtileg eign, svo gott sem ný.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð