Til leigu um 20 m² skrifstofuherbergi með hlutdeild í sameign á 4. hæð við Hamraborg 1 í Kópavogi. Laust frá 1. maí 2026 eða fyrr.
Um er að ræða skrifstofuherbergi með aðgengi að sameiginlegu eldhúsi og snyrtingum. Parket er á gólfi í herberginu.
Allur rekstrarkostnaður er innfalinn í leiguverðinu. VSK leggst ekki við leigufjárhæðina. Mikið útsýni í vesturátt að Fossvogi, Kársnesi og út á sundin blá.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is