AÐALSTRÆTI 16 EFRI HÆÐ Falleg og hlýleg íbúð á efri hæð ásamt góðu risrými í einu af virðulegustu húsum bæjarins með fallegu útsýni. Samtals er eignin 173,4 fm. Hér er um að ræða einstakt hús í hjarta Innbæjarins sem stendur á gatnamótum tveggja elstu gatna bæjarins Hafnarstrætis og Aðalstrætis.
Gengið er inn í íbúðina af verönd á norð-austur horni hússins. Þar er komið inn í flísalagða forstofu. Fallegur stigi er upp á hæðina. Lítið þvottahús er á stigapalli á hæðinni. Aðalhæð íbúðarinnar skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, sjónvarpstofu og eldhús, borðstofu og hol í einu opnu rými. Upprunalegar gólffjalir eru á hæðinni að mestu og hafa þær verið pússaðar upp. Upprunalegar loftfjalir eru í loftum og á veggjum eru brjóstlistar og veggfóður á hluta. Á eldhúsi eru nýrri gólffjalir og á baðherbergi er dúkur. Á baðherbergi er baðkar og eru öll tæki á baði í gömlum stíl. Í eldhúsi er nýleg innrétting og úr borðstofu er farið út á svalir til suðvesturs.
Úr holi er stigi upp í ris sem er skráð 48,7fm en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri undir súð. Risið er að mestu eitt stórt opið rými en þar er þó stúkað af eitt svefnherbergi og lítið salerni. Á risinu væri auðvelt að fjölga svefnherbergjum. Gólffjalir eru þar á gólfum og bitarnir í loftinu sjást sem setur skemmtilegan svip á risið. Allur frágangur er til fyrirmyndar og góð halogen lýsing er í risinu. Risið skiptist annars í eitt svefnherbergi, salerni, dagstofu, lesstofu og skrifstofu- og gestarými/svefnpláss.
Hátt til lofts og vítt til veggja, og íbúðin er björt þar sem gluggar eru bæði stórir og margir.
Með eigninni fylgir einnig 50% hlutur í Aðalstræti 18 fnr. 233-7892, einbýlishúsalóð sem hefur verið notuð sem bílastæði fyrir eigendur Aðalstrætis 16.
Lóðin er stór, skráð 2.217fm og er eignarlóð í sameign með íbúð á neðri hæð, og auk þess að vera flöt í kringum húsið nær hún töluvert upp í brekkuna.
Eignin var endurnýjuð frá grunni fyrir ca. 30 árum síðan og var mjög haganlega að allri vinnu staðið til að viðhalda upprunalegu útliti hússins.
- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Annað: - Húsið var endurgert og hófst sú vinna árið 1992. - Skipt hefur verið um klæðningu að utan, alla glugga, járn á þaki, allar lagnir og ofna í húsinu. - Útihurðin er í gömlum stíl en innihurðir og svalahurð eru upprunalegar. - Hús málað 2022/2023 - Sameiginleg geymsla á jarðhæð. - Húsið er friðlýst að utan. - Göngufæri við miðbæinn.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.