VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Kjarrheiði 18, 810 Hveragerði.
Stórt og fallegt einbýli, innst í botnlanga með skjólgóðum palli, heitum potti og möguleiki á útleiguíbúð.
Eignin er 196,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er skráð 145,2 m² og bílskúr 51,2 m².
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofa, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús, fimm svefnherbergi, tvö af þeim í bílskúr.
Hellulagt bílaplan, tveir fullfrágengnir geymsluskúrar á lóð og garður vel hirtur og fallegur.Sjá staðsetningu hér:Komið er inn í opna og bjarta
forstofu sem leiðir mann beint inn í alrýmið. Forstofa er flísalögð. og þar er tvöfaldur fataskápur.
Frá forstofu er gengið inn í alrýmið en þar er
stofa,
eldhús og
sjónvarpshol. Flísar á eldhúsi, parket í stofu og sjónvarpsholi.
Eldhús er opið og bjart með góðri innréttingu úr dökkum viði. Þar er bakarofn í vinnuhæð, helluborð, uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Stofan er rúmgóð og björt með miklum gluggum og fallegu útsýni. Frá stofu er útgengt á stóra timburverönd en þar er skjólgott svæði fyrir stóla og borð en einnig er þar
heitur pottur. Parket er á stofu en flísar í eldhúsi.
Frá alrými er komið inn í
sjónvarpshol en þar er gott pláss fyrir sófa og sjónvarp, fjarri birtu frá gluggum.
Svefnherbergin eru fimm talsins en búið að breyta bílskúr og eru tvö þeirra þar inni.
Hjónaherbergi snýr út á baklóð en þar er parket á gólfi og gott skápapláss.
Barnaherbergin eru með parketi á gólfi og eru þau bæði um 11fm að stærð.
Þá eru einnig tvö herbergi í bílskúrnum, annað þeirra er með parketi á gólfi og einum glugga en stærra herbergið með flísum á gólfi.
Það herbergi er mjög rúmgott, með gluggum á tvo vegu og stórum fataskáp.
Í bílskúr er einnig búið að koma fyrir innréttingu með skúffu & skápaplássi og eldhúsvaski og þar er gert ráð fyrir þvottavél.
Bílskúrinn er því hægt að
leigja út sem litla íbúð með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi en sér inngangur er í bílskúrinn.
Baðherbergin eru tvö.
Annað þeirra er með innréttingu með tveimur handlaugum og skúffuplássi, baðkar með sturtu, upphengt wc og handklæðaofn. Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf.
Gestasnyrting er með upphengdu wc, handlaug og sturtu. Það er einnig flísalgt í hólf & gólf.
Þvottahús er rúmgott með góðri innrétting og skolvaski. Það er flísalagt og annar inngangur.
Aðkoma að húsinu og garður er fullfrágengin á smekklegan hátt.
Bílaplan er hellulagt sem og aðkoma að húsi og beggja vegna hússins.
Einnig er hellulagt að báðum geymsluskúrum á lóð. Skólgóðir runnar afmarka lóðamörk og fallegur gróður er í garði.
Húsið stendur innst í rólegum botnlanga og mjög fallegt útsýni er frá eigninni.
Eignin er timurhús með liggjandi klæðning, byggt árið 2006.
Gólfhiti er í eigninni.
Lóðin er 966m² að stærð.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.