HEIMKOMA REYKJAVÍK — Þinn staður í borginni fyrir 14,4 milljónirHeimkoma er ný tegund fasteignaþjónustu á Íslandi þar sem nokkrar fjölskyldur deila einni eða fleiri gæða frístundaeignum í skipulögðu samfélagi.Kostir sameignar eru meðal annars. Minni fjárfesting. Lægri rekstrarkostnaður. Betri nýting á fasteignum og innviðum.
Engar áhyggjur né ábyrgð á viðhaldi eða rekstri, Heimkoma sér um allt.
Fyrir 14,4 milljónir króna getur þú eignast hlut í fullbúinni íbúð á Heklureit, með sex vikum til afnota á ári og faglegri umsjón Heimkomu.
Kemurðu reglulega til Reykjavíkur vegna vinnu, fjölskyldu eða til að njóta borgarinnar? Með sameign geturðu átt þinn stað án þess að kaupa heila íbúð. Átta eigendur deila íbúðinni og rekstrarkostnaðinum og nýta hana hver á sínum bókuðu tímum. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón svo þú getir notið þess að koma í bæinn.
Kynntu þér hvernig sameign með Heimkomu virkar.
Þriggja herbergja útsýnis íbúð á fjórðu hæð í nýbyggingu á Heklureit.Birt flatarmál er 90,2 m², þar af 10,5 m² geymsla. Að auki eru 11,4 m² svalir til norðurs.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými með útgengi á svalir. Í eldhúsi eru sérsmíðaðar ítalskar innréttingar, quartz-borðplötur og Siemens-tæki.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Inn af aðalsvefnherbergi eru sérbaðherbergi og fataherbergi. Annað baðherbergi og sérþvottahús eru einnig innan íbúðar. Gólfhiti er í íbúðinni og flestir gluggar gólfsíðir.
Lyfta er í húsinu. Íbúðinni fylgir einkastæði með rafhleðslu í aðgangsstýrðum bílakjallara. Sameiginlegur inngarður er á Heklureit.
Íbúðin verður afhent með húsgögnum og húsbúnaði fyrir fjóra.