SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMA-EIGN GOLFARANS* *GLÆSILEG EINBÝLI VIÐ SERENA GOLFVÖLLINN OG MAR MENOR HAFIÐ* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH.* *SÉR STÆÐI Í SAMEIGINLEGUM BÍLAKJALLARA AUK GEYMSLU* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ*Vönduð og falleg 4ra herb. einbýlishús við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Í boði eru bæði hús á einni hæð og tveimur hæðum. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena sem er skemmtileg spænsk borg. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.
Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is , sími 00354 893 2495NÁNARI LÝSING:
Rúmgóð, björt og vel hönnuð einbýli með þremur svefnherbergjum og tveimur til þremur baðherbergjum. Hjónasvíta er með fataherbergi og sér baðherbergi og önnur herbergi með innbyggðum fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa í opnu og vel tengdu rými. Gott þvottahús er inn af eldhúsi. Stórar þaksvalir og 273 fm sér garður með möguleika á einkasundlaug gegn aukagjaldi. Öllum húsum fylgir stæði í bílakjallara og geymsla. Heimilistæki í eldhúsi fylgja einnig með í kaupunum.
Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri sólbaðsaðstöðu og grænum svæðum sem deilist á 2 lítil fjölbýli með efri/neðri hæðum og 14 einbýlishús.
VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=138ISK.3 svefnh. og 2 baðh. frá 489.000 evrum (ISK 67.500.000)Einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýli á frábærum stað.
Los Alcázares er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isSKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor, Los Alcazares,