LIND fasteignasala kynnir 97,4 fm bjarta og rúmgóða íbúð við Snæland 6 í Fossvoginum. Fjögur herbergi eru í eigninni og hægt er að bæta við öðru svefnherbergi skv. teikningum. Íbúðin er á efstu hæð (2. hæð). Íbúðin er með rúmgóðar svalir í suðvestur með fallegu útsýni. Frábær staðsetning á veðursælum og eftistóttum stað við Fossvogsdal. Eignin er byggð 1973, skráð 97,4 fm. þar af er 5,7 fm geymsla. Eignin skiptist í eldhús, rúmgóða og bjarta stofu og borðstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, lítið herbergi með glugga og baðherbergi. Útgengt út á svalir úr stofunni.
Stórir gluggar eru í stofunni með fallegu útsýni. Íbúðin er innréttuð með stílhreinum innréttingum. Parketi á gólfum og baðherbergi flísalagt.
Nánari lýsing:Eldhús: Opið inn í stofu, hvít innrétting, ofn, helluborð og uppþvottavél innbyggt, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og opin stofa með stórum gluggum og útgögu á suður svalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með stórum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Stór fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Lítið herbergi með glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting, speglaskápur og sturta með gleri og upphengt salerni.
Svalir: 7,4 fm suðursvalir með fallegu útsýni.
Annað: Sameginlegt þvottahús í kjallara ásamt hjóla og vagnageymslu, sérgeymsla telur 5,6 fm.
Allar upplýsingar um eignina veitir: Gabríela Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1992 / gabriela@fastlind.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.