Fasteignaleitin
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-14:00
Skráð 29. okt. 2026

Spóaás 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
213 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
194.000.000 kr.
Fermetraverð
910.798 kr./m2
Brunabótamat
111.850.000 kr.
Byggt 2000
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22447291
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Sigurður Samúelsson Lgf  | ss@aldirfasteignir.is kynna:

Glæsilegt og mikið endurnýjað 213 fm, 5-6 herbergja einbýli á einni hæð í rólegri botnlangagötu í Áslandinu í Hafnarfirði.  Vandaðar innréttingar og tæki.  Aukin lofthæð.  Falleg lóð með sólskála. Stúdíóíbúð í bílskúr.  Geymsluskúr á lóð.  Stutt er í fallega náttúru í kringum Ástjörn og nágrenni.  Göngufæri er einnig í alla helstu þjónustu eins og skóla, leikskóla, matvöruverslun, líkamsrækt og íþróttaaðstöðu Hauka á Ásvöllum.

Forstofa er með marmaraflísum á gólfi og fataskápum.
Parketlagt hol er inn af forstofu með innbyggðri innréttingu með hillum.
Gestasalerni er glæsilegt með stórum speglum og marmaraflísum.
Stofan og borðstofan eru í opnu og hlýlegu rými með parketi á gólfi og aukinni lofthæð.  Fallegur arinn er í stofu.
Setustofa er inn af borðstofu með fallegri innréttingu og góðu gluggarými.
Eldhúsið er með fallegri og vandaðri innréttingu með Miele tækjum og stórri eyju með marmaraborðplötu.  Innbyggð uppþvottavél er í góðri vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur með frysti og tveir ofnar, annar “hybrid”.  Flísar á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með fallegri innréttingu og sturtu. Steinn í borðplötu.  Útgengt út á verönd úr þvottahús.
Svefnherbergin eru fjögur á herbergjagangi, þrjú frekar rúmgóð með parketi á gólfum og fataskápum.  Rúmgott fataherbergi er í hjónaherbergi.
Baðherbergið er glæsilegt með steyptri sturtu með glervegg, baðkari og tveimur handlaugum úr steini. Speglaskápar ofan handlauga.
 
Bílskúrinn (39 fm ) er að stórum hluta innréttaður sem stúdíóíbúð með svefnlofti.  Parket er á alrýminu sem er með lítilli innréttingu með vaski.  Baðherbergið er með sturtu og lítilli innréttingu. Minni hluti bílskúrs er svo nýttur sem geymslurými. Tiltölulega einfalt að breyta til baka.

Lóðin er n.k. hornlóð með fallegum runnum sem ramma lóðina inn.  Sólskáli er í garðinum og afgirt steypt verönd sem snýr til vesturs.  Framan við hús mót suðri er hellulögð verönd.  Geymsluskúr er í garðinum.  Bílastæði fyrir þrjá bíla lóð.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf | ss@aldirfasteignir.is
---------------------------------------------------------------

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikastígur 16A
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Blikastígur 16A
Blikastígur 16A
225 Garðabær
217,6 m2
Einbýlishús
514
758 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallatangi 16
Á einni hæð
Heitur pottur
Jón Rafn_vefur (2).jpg
Skoða eignina Hjallatangi 16
Hjallatangi 16
340 Stykkishólmur
196,7 m2
Einbýlishús
413
480 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Sævangur 41
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Sævangur 41
Sævangur 41
220 Hafnarfjörður
172,2 m2
Einbýlishús
513
668 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 22 - 201
Bílastæði
Opið hús:01. nóv. kl 12:30-13:00
Áshamar 22 - 201
221 Hafnarfjörður
217,8 m2
Fjölbýlishús
413
370 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin